Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2023 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs í Osló

Forsætisráðherrar Norðurlandanna. - myndMynd: Norden.org

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í gær þátt í leiðtogafundi norrænna forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs í Osló. Hún stýrði einnig fundi forsætisráðherranna sem haldinn var í tengslum við fundinn.

Meginumfjöllunarefni leiðtogafundarins var alvarleg staða í heimsmálunum, hvernig hraða megi framkvæmd framtíðarsýnar fyrir árið 2030, einkum hvað varðar græna umbreytingu, og aukið norrænt samstarf á sviði öryggismála.

Á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna í gær var m.a. fjallað um hina alvarlegu stöðu sem uppi er í heimsmálunum, einkum hvað varðar Gasa og Úkraínu. Einnig ræddu ráðherrarnir um loftslagsmál, framtíðarsýn Norðurlanda 2030 og áskoranir tengdar gervigreind og áhrifa tækninnar á lýðræðið. Á fundinum ákváðu ráðherrarnir að efla norrænt samstarf á þessu sviði.

Í ávarpi sínu á leiðtogafundinum sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra m.a.: „Norrænu forsætisráðherrarnir ákváðu í morgun að efla norrænt samstarf til þess að vakta og skilja betur með hvaða hætti gervigreind getur grafið undan lýðræði á Norðurlöndum. Gervigreindin mun nefnilega hafa áhrif á alla geira samfélagsins – og tæknin þróast miklum mun hraðar en hin pólitíska umræða og stefnumótun. Við þurfum að bregðast við strax því lýðræði er í eðli sínu viðkvæmt, að því þarf stöðugt að hlúa en það þarf einnig að vernda.“

Þá flutti forsætisráðherra ávarp á lokaráðstefnu norræns verkefnis um kynferðislega áreitni á vinnustöðum. Á ráðstefunni var rætt um rannsóknir og leiðir til að uppræta og koma í veg fyrir kynferðislega áreitni á vinnustöðum. Forsætisráðherra tók einnig þátt í vinnufundi ásamt forsætisráðherrum hinna EES-ríkjanna, Noregs og Liechtenstein. Þar var rætt um málefni EES, þ. á m. 30 ára afmæli EES-samningsins á næsta ári.

Í gærkvöld var forsætisráðherra viðstödd afhendingu verðlauna Norðurlandaráðs. Þar hlaut Rán Flygenring barna- og unglingabókmenntaverðlaun ráðsins fyrir myndabókina Eldgos.

Dagskrá forsætisráðherra í tengslum við Norðurlandaráðsþing lauk í morgun með fundi hennar með forsætisnefnd Norðurlandaráðs.

  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í ræðustól á þingi Norðurlandaráðs í Osló. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum