Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ráðstefna: Hvernig getur réttinda- og lýðræðislegt skólaumhverfi unnið gegn hatursorðræðu í skólastofunni?

Hvernig getur réttinda- og lýðræðislegt skólaumhverfi unnið gegn hatursorðræðu í skólastofunni er umfjöllunarefni ráðstefnu sem fer fram 16. nóvember kl. 9:00–15:30 í Hörpu. Mennta- og barnamálaráðuneytið stendur fyrir ráðstefnunni sem er hluti af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni og afmæli Barnasáttmálans sem fagnar 34 ára afmæli 20. nóvember nk.

Markmið ráðstefnunnar er að leiða saman fagfólk á vettvangi til þess að ræða hvernig hægt sé að skapa barnaréttindamiðað og lýðræðislegt skólaumhverfi og takast á við það mikilvæga mál að berjast gegn hatursorðræðu og fordómum innan skólaumhverfisins. Á ráðstefnunni verður sérstaklega horft til reynslu Norðurlandanna og þá einkum til tengslanets Norrænu ráðherranefndarinnar um lýðræði, inngildingu og samheldni (DIS, demokrati, inklusion og sammenhallning).

Á ráðstefnunni verður fjallað um fordóma og hatursorðræðu á Íslandi, einkum er snýr að skólasamfélaginu. Rætt verður um áskoranir og tækifæri sem felast í tjáningarfrelsinu, úrræði til að taka á fordómum, öfgahyggju og hatursorðræðu í kennslustofunni, og aðferðir til að efla lýðræði, gagnrýna hugsun og stuðla að inngildingu. Sjónum verður beint að verkfærum sem nýst hafa á Norðurlöndunum til að styðja við skólasamfélagið.

Ráðstefnan fer fram á ensku og ber heitið Advancing Child Rights and Democratic School Environments, Embracing Diversity and Combating Hate Speech. Fyrirlesarar á ráðstefnunni koma víða að og búa yfir víðtækri þekkingu og reynslu, bæði í skólastarfi og á sviði rannsókna.

Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig.

Streymt verður frá ráðstefnunni á vef Stjórnarráðsins og upptaka birt að ráðstefnu lokinni.

Streymi

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum