Hoppa yfir valmynd
7. nóvember 2023 Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

Opið fyrir umsóknir í barna- og ungmennaráð heimsmarkmiðanna

Frá fundi ríkisstjórnarinnar með ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í apríl 2023. - mynd

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í barna- og ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra fer með skipun ráðsins en óskað er eftir börnum sem eru tilbúin að sitja í ráðinu í tvö ár, frá og með janúar 2024.

Átta meðlimir ungmennaráðsins verða kosnir á barnaþingi umboðsmanns barna sem haldið verður í Hörpu þann 17. nóvember. Þar verða saman komin börn allstaðar að af landinu, en frambjóðendur geta ekki komið á þingið sjálft. Í stað þess munu þátttakendur fá kjörlista með upplýsingum um hvern frambjóðenda og persónuupplýsingar. Fjórir meðlimir ráðsins verða svo valdir í kjölfarið, af valnefnd á vegum forsætisráðuneytisins. Val á þeim einstaklingum miðast við að tryggja fjölbreytileika barnanna í ráðinu.

Í ungmennaráðinu sitja tólf börn og skulu þau vera 13-18 ára á meðan á skipunartímabilinu stendur. Öll börnin í ráðinu skulu því vera fædd á árunum 2008-2011. Leitast er eftir því að hafa fjölbreyttan hóp barna í ráðinu, þá sér í lagi með tilliti til kynjahlutfalls og búsetu en áhersla hefur verið lögð á að vera með fulltrúa úr öllum landshlutum. Ráðið heldur að meðaltali einn netfund í mánuði og hittist í persónu á lengri fundum 3-4 sinnum yfir árið. Forsætisráðuneytið stendur undir öllum kostnaði við ferðalög og fundarhöld og því ekki reiknað með að börn beri kostnað af setu í ráðinu.

Hlutverk ungmennaráðs heimsmarkmiðanna er fyrst og fremst að vinna með málefni tengd heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun og vinna að því að koma sjónarmiðum barna á framfæri. Þetta er eina ungmennaráðið sem starfar innan stjórnsýslunnar og ráðleggur það ráðuneytum og ýmsum stofnunum eftir óskum. Einnig hefur ráðið greiðan aðgang að ráðuneytum til að koma sínum málefnum á framfæri og funda til að mynda árlega með ríkisstjórn. 

Ungmennaráðið heldur á lofti ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, þá sér í lagi hvað varðar áhrif barna á ákvarðanatöku og rétt þeirra til að láta skoðanir sínar í ljós. Frekari upplýsingar má nálgast hér en ráðið er einnig á instagram sem @ungheim.

Hægt er að gefa kost á sér í ráðið hér, en lokað verður fyrir umsóknir klukkan 23.59, mánudaginn 13. nóvember. Öllum frambjóðendum verður tilkynnt um niðurstöður kosninga og valnefndar fyrir 10. desember.

Þess ber að geta að nafnabreyting hefur átt sér stað þar sem ráðið hét áður ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Þar sem Stjórnarráðið vinnur með fleiri aldurshópum ungmenna, hefur verið ákveðið að ráðið skuli nú heita barna- og ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum