Hoppa yfir valmynd
7. nóvember 2023 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Ráðherra geimvísinda skrifar undir samning við NASA

Ráðherra geimvísinda skrifar undir samning við NASA - myndUnsplash / Guillermo Ferla

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur undirritað samning við Geimferðastofnun Bandaríkjanna, betur þekkt sem NASA, en málefni geimvísinda heyra undir HVIN ráðuneytið. Um er að ræða tvíhliða milliríkjasamning milli Bandaríkjanna og annarra þátttökuríkja sem kallast Artemis samkomulagið og er Ísland þrítugasta ríkið til að undirrita. Þátttaka Íslands í samkomulaginu hefur í för með sér mikil tækifæri fyrir rannsóknir og nýsköpun auk tækifæra til að móta alþjóðlega umgjörð um umgengni í geimnum.

,,Það er mikil lyftistöng fyrir Ísland að tengjast NASA með þessum hætti. Þátttakan býður upp á ákveðið forskot bæði hvað varðar rannsóknir og nýsköpun. Þetta er mikilvægt fyrsta skref þegar kemur að alþjóðlegu samstarfi um geiminn,” segir Áslaug Arna.

Artemis geimferðaáætlunin er friðsamleg áætlun um könnun og hagnýtingu sólkerfisins á ábyrgan hátt. Í henni felast áform um mannaðar geimkönnunarferðir og mannaða ferð til tunglsins árið 2025. Lokamarkmiðið er svo að senda mannaða geimflaug til Mars. NASA leiðir áætlunina en þar að auki koma að henni fjölmargir aðilar í gegnum tvíhliða samninga, þ.á m. Evrópska geimferðastofnunin (European Space Agency). 

Aðildarþjóðir Artemis samkomulagsins skuldbinda sig til að deila sín á milli rannsóknarniðurstöðum á sviði geimrannsókna. Aðgangur íslensks vísindafólks að slíkum gögnum og samstarfi um gögn og gagnaöflun geta þannig orðið mikilvæg undirstaða fyrir rannsóknir á ýmsum sviðum háskóla- og vísindasamfélagsins, t.d. þegar kemur að jarðfræði, verkfræði, upplýsingatækni, efnafræði og fleiri greinum. 

Þátttaka Íslands í verkefninu stuðlar einnig að þróun nýrra vísindagreina á borð við stjörnulíffræði (e. astrobiology) hér á landi. Í þeirri grein geta sérstakar umhverfisaðstæður á Íslandi, t.d. jarðhiti, kalt loftslag og sérstakur jarðvegur, nýst vel til rannsókna um uppruna og þróun lífs í víðu samhengi. Einnig nýtast umhverfisaðstæður hér á landi við undirbúning könnunarleiðangra til annarra pláneta. Í því sambandi má nefna að vísindafólk á vegum NASA hefur í nokkur skipti heimsótt Ísland í vísindalegum tilgangi, m.a. á síðasta ári þegar unnið var að rannsóknum á setlögum við Sandvatn og víðar. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum