Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Yfirlýsing vegna tímamótaúrskurðar AIB um íslenskar upprunaábyrgðir

AIB (Association of Issuing Bodies) úrskurðaði í dag að Ísland uppfylli allar kröfur upprunaábyrgðarkerfis þess og verður ekki gripið til frekar ráðstafana gagnvart Landsneti eða íslenskum upprunaábyrgðum. Óvissu um sölu íslenskra upprunaábyrgða er því aflétt án fyrirvara. AIB komst að þessari niðurstöðu í dag.

AIB stöðvaði í lok apríl á þessu ári sölu á íslenskum upprunaábyrgðum vegna gruns um tvítalningu (double counting) þeirra hér á landi. Banninu var aflétt skömmu síðar á meðan frekari gagna var aflað. Niðurstaða þeirra skoðunar er að Ísland uppfylli allar kröfur og er málinu því lokið.

Úrskurður AIB er í samræmi við úttekt Orkustofnunar og þýsku umhverfisstofnunarinnar (UBA). UBA bannaði útgáfu ábyrgðanna í kjölfar ákvörðunar AIB í vor, en aflétti svo banninu eftir að úttekt sýndi afdráttarlaust fram á að ekki væri um tvítalningu að ræða. Niðurstaða úttektar Orkustofnunar og UBA var að ekki sé um tvítalningu að ræða, sem væri ef framleiðandi seldi tveimur aðilum sömu vöruna/ábyrgðina. Var niðurstaða Orkustofnunar, sem AIB staðfestir í úrskurði sínum, að eftirlit og framfylgni laga um upprunaábyrgðir hér á landi sé með sambærilegum hætti og  í öðrum EES löndum og uppfylli ítrustu kröfur.

Ísland er bundið af löggjöf Evrópusambandsins um upprunaábyrgðir vegna aðildar sinnar að Samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og regluverk um upprunaábyrgðir innleitt hér á landi árið 2008 í samræmi við þessar skuldbindingar.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir niðurstöðu AIB alls ekki koma á óvart, enda í samræmi við niðurstöður Orkustofnunar og hinnar þýsku stofnunar UBA. „Það eru gríðarlega mikilvægt að það sé búið að aflétta þessari óvissu gagnvart okkar innlendu fyrirtækjum og viðskiptavinum þeirra, innlendra sem erlendra. Það er ljóst, það sem við vissum vel að það var aldrei brotalöm í löggjöf eða framfylgd þeirra hér á landi sem er að fullu leyti í samræmi við reglur annarra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu. Því kom bannið á sínum tíma mjög á óvart og að okkar mati óþarflega harkalegt inngrip byggt á veikum grunni eins og niðurstaðan leiðir bersýnilega í ljós.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum