Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fyrsta landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks

Frá 300 manna samráðsþingi sem fram fór í Hörpu í febrúar sl. um landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks. - mynd

Fyrsta landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks hefur nú verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Áætlunin felur í sér 57 aðgerðir til að koma í framkvæmd ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Landsáætlunin er liður í innleiðingu og lögfestingu samningsins hér á landi.

„Landsáætlunin markar tímamót, enda fer nú í fyrsta sinn fram heildstæð stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks á Íslandi. Markmiðið er að fatlað fólk geti notið mannréttinda og mannfrelsis til fulls og til jafns við annað fólk,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Fjölmennur hópur fólks vann að gerð áætlunarinnar. Alls störfuðu 11 vinnuhópar með verkefnisstjórn og í hverjum hópi sátu fulltrúar hagsmunasamtaka fatlaðs fólks; Geðhjálpar, Landssamtakanna Þroskahjálpar og ÖBÍ réttindasamtaka, fulltrúar sveitarfélaga og fulltrúar Stjórnarráðsins, þ.e. starfsmenn ráðuneyta eða stofnana þeirra.

33 ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var skipt upp á milli vinnuhópanna og á grundvelli greiningar á stöðu hvers ákvæðis hér á landi mótuðu vinnuhóparnir tillögur að aðgerðum til að nálgast markmið samningsins.

Hringferð um landið vegna landsáætlunar

Samhliða vinnslu landsáætlunarinnar stóð Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fyrir opnum samráðsfundum um landið. Þar gafst fólki tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun þjónustu við fatlað fólk hér á landi. Samráðsfundirnir voru vel sóttir og gagnlegar umræður sköpuðust.

Í febrúar sl. sóttu auk þess um 300 manns samráðsþing í Hörpu um landsáætlunina. Að þinginu stóðu félags- og vinnumarkaðsráðuneytið ásamt forsætisráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, ÖBÍ réttindasamtökum, Landssamtökunum Þroskahjálp og Geðhjálp.

Heildstæð stefnumótun

Landsáætlunin er lögð fram sem tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024-2027. Alþingi hefur áður samþykkt tvær framkvæmdaáætlanir í málefnum fatlaðs fólks, fyrir árin 2017-2021 og 2012-2014, en landsáætlun er á hinn bóginn hluti af heildstæðri stefnumótun í þjónustu og þróun réttinda fatlaðs fólks. Henni er ætlað að ná til allra þeirra málefnasviða sem undir samninginn heyra.

 Frá samráðsþinginu sem fram fór í Hörpu í tengslum við vinnslu landsáætlunarinnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum