Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

Tvísköttunarsamningur við Ástralíu tekur gildi

Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Ástralíu hefur tekið gildi og kemur til framkvæmda hérlendis frá og með 1. janúar 2024. Í Ástralíu kemur samningurinn til framkvæmda frá og með 1. janúar 2024, en í ákveðnum tilfellum tekur hann gildi 1. apríl eða 1. júlí eftir því hvaða skatta um ræðir.

Markmið tvísköttunarsamningsins við Ástralíu, sem nær til tekjuskatta, er að koma í veg fyrir tvísköttun á viðskipti milli ríkjanna og vinna gegn skattaundanskotum. Með því að ryðja úr vegi skattalegum hindrunum auðveldar samningurinn viðskipti milli ríkjanna og hvetur til gagnkvæmra fjárfestinga. Þá mun samningurinn jafna samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja á erlendum vettvangi og auka fyrirsjáanleika í viðskiptum.

Samningurinn verður birtur í Stjórnartíðindum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum