Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2023 Utanríkisráðuneytið

Færanlega neyðarsjúkrahúsið komið í notkun í Úkraínu

Sjúkrahúsið í Eistlandi, skömmu áður en það var flutt til Úkraínu. - myndÞórir Guðmundsson

Færanlega neyðarsjúkrahúsið, sem Alþingi ákvað í vor að gefa úkraínsku þjóðinni, er komið til Úkraínu og hefur verið tekið í gagnið. 

Heildarkostnaður við verkefnið nam 7,4 milljónum evra eða um það bil 1,1 milljarði króna. Sjúkrahúsið er mikilvæg viðbót og kemur að góðum notum við að hlúa að særðum hermönnum og borgurum nærri vígvellinum. 

„Það er okkur sérstakt ánægjuefni að geta stutt við vini okkar í Úkraínu með þessum beina hætti. Samstarfið við Eista og Þjóðverja í þessu verkefni hefur verið til fyrirmyndar og það gleður okkur að vita að sjúkrahúsið kemur að góðum notum við að bjarga lífum og lina þjáningar þeirra sem særast í réttmætri varnarbaráttu þjóðarinnar gagnvart rússneska innrásarliðinu,“ segir Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra.

Húsnæðið samanstendur af tíu gámaeiningum sem mynda fullbúið sjúkrahús sem hægt er að reka sjálfstætt og án stuðnings svo dögum skiptir. Hægt er að haga uppröðun eininganna eftir þörfum á hverjum tíma og tengja við önnur sjúkrahús sömu gerðar. Þar er m.a. að finna fullbúnar skurðstofur, gjörgæslurými, móttöku- og greiningarrými, stoðeiningar með rafstöð, súrefnispressu, sótthreinsiaðstöðu salernis- og bað- og þvottaaðstöðu auk sérhæfðra geymslurýma. 

Afkastageta sjúkrahússins er veruleg, því þar eru legupláss fyrir 40 sjúklinga hverju sinni og hægt að sinna 240 sjúklingum á sólarhring sem og allt að 24 alvarlega slösuðum. Þá eru gámaeiningar sjúkrahússins fluttar á milli staða á sérútbúnum hervörubílum, sem þýski herinn gaf til verkefnisins. 

Verkefnið var unnið í þéttu samstarfi við Eistland þar sem sjúkrahúsin voru hönnuð og framleidd. Eistneski herinn sá jafnframt um að þjálfa úkraínska starfsliðið sem rekur sjúkrahúsið. Áður höfðu Holland, Noregur og Þýskaland gefið samskonar sjúkrahús í samstarfi við Eista og verður hægt að samnýta þau eftir þörfum.

  • Færanlega neyðarsjúkrahúsið komið í notkun í Úkraínu - mynd úr myndasafni númer 1
  • Færanlega neyðarsjúkrahúsið komið í notkun í Úkraínu - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum