Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2023 Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stuðningur við Grindvíkinga vegna húsnæðis​​

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á ríkisstjórnarfundi í dag stuðningsaðgerðir til að mæta húsnæðisþörfum Grindvíkinga vegna jarðhræringa á svæðinu. Aðgerðirnar fela annars vegar í sér tímabundinn fjárhagslegan stuðning vegna aukins húsnæðiskostnaðar og hins vegar verður sett í forgang að tryggja Grindvíkingum húsnæði til leigu á meðan á almannvarnarástandi og rýmingu stendur og eftir atvikum lengur ef þörf krefur.

Sértækur fjárhagslegur stuðningur

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra mun í næstu viku leggja fram frumvarp á Alþingi um sértækan húsnæðisstuðning til að koma til móts við aukinn kostnað þeirra sem þurfa að leigja sér húsnæði utan Grindavíkur vegna jarðhræringanna. Stuðningurinn verður tímabundinn til þriggja mánaða og endurskoðaður fyrir lok þess tímabils með tilliti til þarfar á áframhaldandi stuðningi. Veittur verður mánaðarlegur húsnæðisstuðningur sem fer stighækkandi eftir fjölda heimilisfólks gegn framvísun skráðs leigusamnings.

Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við slíkt stuðningskerfi geti numið um 220-240 m.kr. á mánuði.

Kaup á íbúðarhúshæði í þágu Grindvíkinga

Alls voru um 3.700 íbúar skráðir með  lögheimili í Grindavík áður en þær jarðhræringar sem nú standa yfir hófust. Miðað við þær umsóknir sem borist hafa um skammtímahúsnæði er talið að um 700 einstaklingar eða um 200 fjölskyldur þurfi á húsnæði að halda fyrir áramót eins og er. Flest þeirra hafa óskað eftir húsnæði á höfuðborgarsvæðinu eða Suðurnesjum.

Til að mæta húsnæðisþörf Grindvíkinga sem rýma hafa þurft heimili sín hefur m.a. verið leitað til Bríetar leigufélags, sem er að fullu í eigu ríkisins, um að kaupa allt að 150 nýjar íbúðir á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess, til leigu fyrir Grindvíkinga. Leitað verður hagstæðustu tilboða í eignirnar sem fjármagnaðar verða af Húsnæðissjóði. Þá mun Bjarg íbúðafélag koma að því að mæta sérstaklega húsnæðisþörf tekjulægri heimila í Grindavík með mögulegum kaupum á allt að 60 íbúðum. Gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði til afhendingar á næstu vikum. 

Samtals verður því unnt í samstarfi við Grindavíkurbæ að ráðstafa allt að 210 nýjum íbúðum innan skamms til Grindvíkinga til að leysa brýna húsnæðisþörf. Grundvöllur verkefnisins er að samningar náist við verktaka um kaup á tilbúnum íbúðum á hagstæðu verði og ráðist verði í það í skrefum samhliða stöðugu mati á húsnæðisþörf. Litið er á verkefnið sem tímabundið á meðan óvissu gætir um framhald mála vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Sérstök viljayfirlýsing var undirrituð í Ráðherrabústaðnum í dag við leigufélögin Bríeti og Bjarg um kaup á ofangreindum íbúðum.

Starfshópur um húsnæðiseiningar

Sérstakur starfshópur hefur einnig verið settur á laggirnar til að kanna fýsileika á kaupum á tilbúnum, hagstæðum og færanlegum húsnæðiseiningum sem hægt væri að fá afhentar með tiltölulega stuttum fyrirvara. Sá hópur hefur einnig það hlutverk að kanna möguleg landsvæði, einkum á Reykjanesi eða á höfuðborgarsvæðinu, með þessa útfærslu í huga þar sem fyrir eru ákveðnir innviðir sem nauðsynlegir eru. Reynt verður að hraða vinnu starfshópsins eins og kostur er.  

Með slíkri lausn væri hægt að mæta húsnæðisþörf Grindvíkinga til lengri tíma, og mæta jafnframt annarri brýnni þörf fyrir hentugu húsnæði á viðráðanlegum kjörum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum