Hoppa yfir valmynd
8. desember 2023 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

HÍ fær yfir 500 m.kr. til að fjölga nemendum í heilbrigðisvísindum og tækni- og raungreinum - fleiri raungreinakennarar í grunnskóla eru hluti af samkomulaginu

HÍ fær yfir 500 m.kr. til að fjölga nemendum í heilbrigðisvísindum og tækni- og raungreinum - fleiri raungreinakennarar í grunnskóla eru hluti af samkomulaginu   - myndKristinn Ingvarsson / HÍ

,,Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir ýmsum áskorunum sem mikilvægt er að háskólarnir taki þátt í að mæta. Til þess að stuðla að lausnum við fjölbreyttum samfélagslegum áskorunum höfum við forgangsraðað fjármunum þannig að hægt sé að fylgja eftir þeim markmiðum sem við höfum sett og eru samfélaginu mikilvæg,” segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Samkomulag við Háskóla Íslands um sókn í heilbrigðisvísindum, félagsráðgjöf og STEM-greinum, þ.e. vísinda- og tæknigreinum, verkfræði og stærðfræði var undirritað í hátíðarsal Háskóla Íslands í gær.

Ný námsleið og fjölgun lækna- og hjúkrunarfræðinema og félagsráðgjafanema

Mikilvægt er að bæta heilbrigðisþjónustu og aðgengi að henni. Ljóst er að til að það geti gerst er nauðsynlegt að útskrifa mun fleiri nemendur í heilbrigðisvísindum. Í því skyni gera háskólaráðuneytið og HÍ samkomulag um að fjölga bæði nemendum og námsleiðum á Heilbrigðisvísindasviði sem og í Félagsráðgjafardeild með fjölgun nemenda í félagsráðgjöf. 

Áætlað er að fjölga nemendum í læknisfræði úr 60 í 75 árið 2024 og svo upp í 90 nemendur í áföngum til ársins 2028. Jafnframt er stefnt að fjölgun nemenda í hjúkrunarfræði úr 120 í 150 frá og með haustinu 2025. Þar að auki verði boðið upp á nýtt diplómanám í vímuefnaráðgjöf frá og með næsta skólaári. 

Alls verður 250 m.kr. ráðstafað í eflingu Heilbrigðisvísindasviðs í þessu skyni og 54 m.kr. í fjölgun nemenda til starfsréttinda í félagsráðgjöf úr 40 í 60 haustið 2024. 

Sérstakt átak á sviði STEM greina

Jafnframt er mikilvægt að háskólarnir mæti þörfum atvinnulífsins sem kallar eftir fjölgun nemenda í tækni- og verkfræðigreinum. Til að mæta sárum skorti á fjölda sérfræðinga á þessum sviðum, m.a. í hugverkaiðnaði, gera HVIN og HÍ með sér samkomuleg um aðgerðir sem eiga að leiða til fjölgunar nemenda á Verkfræði- og náttúruvísindasviði skólans. 

Ráðist verður í aðgerðir til að minnka brottfall á Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Í því skyni verður sérstök áhersla lögð á bætta móttöku nemenda á fyrsta ári. Þá verður dæmatímakennurum fjölgað og yfirferð náms á fyrsta ári endurskoðuð. Jafnframt verður ráðist í sérstakt átak sem hefur það að markmiði að fjölga nemendum á sviðinu. Byggð verður brú á milli Verkfræði- og náttúruvísindasviðs og Menntavísindasviðs í þeim tilgangi að fjölga verulega kennurum í STEM greinum, með áherslu á raungreinakennara á grunnskólastigi. Samtals verður 250 m.kr. varið til þessa verkefnis. 

Samkomulagið er þegar fjármagnað af safnlið háskóla og því er ekki um viðbótarútgjöld að ræða.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum