Hoppa yfir valmynd
18. desember 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á Alþingi

Alþingi samþykkti um helgina frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um kílómetragjald. Nýju lögin fela í sér að á næsta ári verður innleitt kílómetragjald fyrir notkun rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla í flokki fólks- og sendibíla, sem áður báru takmarkaðan kostnað af notkun vegakerfisins.

Ný nálgun við fjármögnun vegainnviða

Orkuskipti, minnkandi eldsneytisnotkun og viðvarandi þörf fyrir uppbyggingu vegainnviða kalla á nýja nálgun við fjármögnun til að tryggja greiðar og öruggar samgöngur um allt land. Stefnt er að innleiðingu nýs, einfaldara og sanngjarnara gjaldtökukerfis á næstu árum sem verði óháð orkugjafa. Gert er ráð fyrir að greitt verði almennt kílómetragjald fyrir notkun vegainnviða í stað vörugjalda á bensín og olíugjald. Kolefnisgjald verður áfram greitt fyrir notkun dísilolíu og bensíns vegna þeirra loftslagsáhrifa sem notkun þeirra orkugjafa veldur. Þannig verður unnt að styðja við áframhaldandi uppbyggingu og viðhald vegakerfisins samhliða orkuskiptum til framtíðar. Nánari upplýsingar um þessa framtíðarsýn er að finna á upplýsingasíðunni www.vegirokkarallra.is.

Aðlögun fjármögnunar vegasamgangna að orkuskiptum fer fram í tveimur áföngum:

  •  Árið 2024: Innleiðing kílómetragjalds fyrir notkun rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla í flokki fólks- og sendibifreiða. Kílómetragjaldið verður 6 kr. fyrir rafmagns- og vetnisbíla og 2 kr. fyrir tengiltvinnbíla.
  • Árið 2025: Innleiðing kílómetragjalds vegna notkunar allra ökutækja á vegakerfinu, þ.m.t. dísel- og bensínbíla. Samhliða er gert er ráð fyrir að eldri gjöld á borð við vörugjöld af eldsneyti muni eftir atvikum lækka eða falla niður, þó kolefnisgjald verði áfram greitt. Frumvarp um þetta verður lagt fram á næsta ári.

Kílómetragjald árið 2024

Kílómetragjaldið verður áætlað og greitt með svipuðum hætti og gjöld fyrir þjónustu veitu- og orkufyrirtækja vegna sölu á heitu vatni og rafmagni. Kílómetragjaldið verður greitt mánaðarlega út frá áætlun um fjölda ekinna kílómetra á tímabilinu.

Gjaldtakan verður byggð á akstursáætlun á grundvelli upplýsinga sem eigendur eða umráðamenn bíla skrá inn á Ísland.is, í smáforriti eða á vefsvæði. Einnig verður þó í boði önnur skráningarleið fyrir þá sem ekki geta nýtt sér Ísland.is þar sem heimilt verður að skila upplýsingum og gögnum skriflega til ríkisskattstjóra auk þess sem hægt verður að skrá stöðu akstursmælis hjá faggiltri skoðunarstofu.

Á næstunni munu umráðamenn rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla geta með einföldum hætti skráð kílómetrastöðu bíla sinna á Ísland.is þar sem jafnframt verður að finna greinargóðar upplýsingar um ferlið. Fyrsta skráning á kílómetrastöðu eftir upphaf gjaldtöku skal eiga sér stað fyrir 20. janúar 2024. Fyrsti gjalddagi greiðslna vegna gjaldtímabilsins janúar 2024 verður 1. febrúar 2024 og eindagi 14 dögum síðar.

Jákvæð þróun hefur veikt fjármögnun

Miklar framfarir í þróun sparneytnari bíla hafa leitt til þess að nýrri bílar geta ekið töluvert fleiri kílómetra á hverjum lítra eldsneytis. Þessi þróun hefur á sama tíma veikt getu ríkissjóðs til að fjármagna viðhald og uppbyggingu vega með sífellt minni tekjum af ökutækjum og eldsneyti, þar sem tekjuöflunin byggist að stórum hluta á föstu gjaldi á hvern lítra eldsneytis. Með lögfestingu kílómetragjalds vegna aksturs rafmagns- vetnis og tengiltvinnbíla er stigið fyrsta skrefið í átt að nýju einfaldara, gagnsærra og sjálfbærara fyrirkomulagi gjaldtöku af ökutækjum til framtíðar.

Samhliða þessu hefur stuðningur stjórnvalda og góðar aðstæður til orkuskipta skilað Íslandi í fremstu röð í orkuskiptum í vegasamgöngum. Þannig eru rafmagns- og tengiltvinnbílar, sem greiða mjög takmarkað fyrir notkun vega, orðnir tæpur fimmtungur af fólksbílum í umferð. Hlutfall þeirra af nýskráðum fólksbílum á þessu ári er um 57%, en 79% ef frá eru taldar nýskráningar bílaleiga.

Leiðbeiningar um skráningu er að finna á Ísland.is/kilometragjald en fólk getur skráð kílómetersstöðuna undir ökutæki á Mínum síðum Ísland.is og í Ísland.is appinu.

Vefsíðan Vegir okkar allra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum