Hoppa yfir valmynd
23. desember 2023 Utanríkisráðuneytið

Ísland tekur þátt í ríkjahópum sem styðja varnargetu Úkraínu

Ísland mun taka þátt í starfi tveggja ríkjahópa sem veita Úkraínu stuðning, annars vegar á sviði netvarna- og upplýsingamála (IT Coalition) og hins vegar á sviði sprengjueyðinga (Demining Coalition). 

„Markmiðið er að stuðningurinn leiði til bættrar varnarstöðu Úkraínu í baráttunni við innrásarlið Rússa. Með því að taka þátt í þessum ríkjahópum og veita viðbótarfjárframlög höldum við áfram að sýna í verki mikilvægi þess að styðja við Úkraínu af fullum kraft,“ segir Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra. 

Ríkjahópur á sviði netvarna- og upplýsingamála mun veita úkraínska varnarmálaráðuneytinu stuðning á sviði fjarskipta og netöryggis. Ríkjahópur um sprengjueyðingu mun styðja við aðgerðir til að vinna að jarðsprengjueyðingu í Úkraínu með því að veita úkraínska hernum þjálfun og búnað.

Ísland tilkynnti einnig um viðbótarfjárframlag upp á 50 milljón krónur í gegnum sjóði Atlantshafsbandalagsins (e. Comprehensive Assistance Package) til kaupa á lækningavörum fyrir Úkraínu. Frá innrás Rússa í Úkraínu fyrir tæpum tveimur árum hefur Ísland veitt Úkraínu stuðning til mannúðar-, efnahags- og öryggistengdra verkefna upp á rúma 5,5 milljarða íslenskra króna. Stuðningurinn hefur fyrst og fremst verið veittur í gegnum alþjóðlegar stofnanir, þar á meðal Sameinuðu þjóðirnar, Alþjóðabankann, Atlantshafsbandalagið og í gegnum aðra fjölþjóðlega vettvanga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum