Hoppa yfir valmynd
9. janúar 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Stutt við uppbyggingu alþjóðaflugs á landsbyggðinni

Á Akureyrarflugvelli: Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdarstjóri Markaðsstofu Norðurlands, Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, Pétur Óskarsson forstjóri Íslandsstofu og Dagmar Ýr Stefánsdóttir framkvæmdarstjóri Austurbrúar. - mynd
Menningar- og viðskiptaráðherra undirritaði í dag samning við Íslandsstofu um áframhaldandi stuðning við markaðssetningu á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli. Verkefninu Nature Direct er ætlað að hvetja til samstarfs og samvinnu Íslandsstofu, Isavia, Markaðsstofu Norðurlands og Austurbrúar um kynningu á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum fyrir beint millilandaflug á svæðinu. Samningurinn er til tveggja ára og nemur árlegt framlag til hans 15 m.kr.

Með samningum fá Isavia innanlandsflugvellir og Íslandsstofa það hlutverk að kynna flugvellina sem og Flugþróunarsjóð, en sjóðurinn hefur það að markmiði að styðja við uppbyggingu nýrra flugleiða til Íslands þannig að koma megi á reglulegu millilandaflugi um alþjóðaflugvellina Akureyri og Egilsstaði.

„Eitt af forgangsmálum mínum sem ferðamálaráðherra er að stuðla að aukinni dreifingu ferðamanna um landið utan háannatíma. Það bætir rekstrarskilyrði í greininni með auknum fyrirsjáanleika og betri nýtingu innviða á ársgrundvelli. Skilvirkasta leiðin til þess er að ýta undir beint millilandaflug til alþjóðaflugvallanna á landsbyggðinni. Flug EasyJet frá London til Akureyrar er stór áfangi og að baki honum liggur þrotlaus vinna. Það eru fjölmörg tækifæri fólgin í ferðaþjónustu á landsbyggðinni allan ársins hring sem mikil verðmæti eru fólgin í að nýta,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

„Það er hluti af útflutningsstefnu Íslands að stuðla að öflugri ferðaþjónustu um allt land, allt árið. Beint flug leikur þar stórt hlutverk og undanfarið hafa verið stigin mikilvæg skref í þeim efnum. Við hjá Íslandsstofu hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs við Markaðsstofu Norðurlands, Austurbrú og Isavia innanlandsflugvelli við að kynna þessa frábæru áfangastaði. Það eru spennandi tækifæri framundan,“ segir Pétur Óskarsson forstjóri Íslandsstofu.

Þá ákvað menningar- og viðskiptaráðherra jafnframt að veita Markaðsstofu Norðurlands og Austurbrú 20 m.kr framlag hvorri til þess að kynna áfangastaðina, innviði og þjónustu í boði, vöruframboð og undirbúa komu væntanlegra ferðamanna með beinu millilandaflugi til Akureyrar og Egilsstaðaflugvallar.

„Beint flug til Akureyrar hefur haft mjög víðtæk áhrif á ferðaþjónustu og samfélagið allt á Norðurlandi á undanförnum árum, og við sjáum nú þegar áhrifin sem easyJet hefur haft í vetur. Framundan eru stærstu vikurnar í vetrarferðaþjónustu og þar verða Bretar enn meira áberandi en verið hefur, þar sem sala á flugferðum hefur verið framar vonum. Áframhaldandi flug easyJet næsta vetur byggir svo enn frekar undir ímynd Akureyrar og Norðurlands sem áfangastaðar. Ferðaþjónustufyrirtæki vinna langt fram í tímann og tilkynningin um flug næsta vetur hefur gefið norðlenskri ferðaþjónustu byr undir báða vængi í samtölum við breskar ferðaskrifstofur. Á fimmtudaginn gefst okkur tækifæri til að hitta fólk sem vinnur hjá þessum ferðaskrifstofum í íslenska sendiráðinu í London, sýna þeim hvað er hægt að upplifa hér og segja þeim betur frá því hvers vegna það er svo góður kostur að fljúga beint til Akureyrar að vetrarlagi,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

„Uppbygging Egilsstaðaflugvallar er forsenda þess að á Austurlandi geti dafnað öflug ferðaþjónusta allt árið um kring. Á síðustu árum hefur atvinnugreinin eflst til muna og landshlutinn hefur líkast til aldrei haft jafn mikið aðdráttarafl sem áfangastaður. En við eigum mikið inni og takist okkur að tryggja beint millilandaflug, til og frá Egilsstöðum, eru möguleikarnir á auknum vexti greinarinnar óþrjótandi með tilheyrandi atvinnusköpun, auknum gjaldeyristekjum og fjölgun íbúa. Við fögnum því þessu skrefi sem tekið er í dag og erum þakklát stjórnvöldum að sýna í verki vilja sinn að þau stefni að jafnari dreifingu ferðamanna yfir árið og um landið allt, segir Dagnar Ýr Stefánsdóttir framkvæmdarstjóri Austurbrúar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum