Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2024 Dómsmálaráðuneytið

Þrír sóttu um embætti héraðsdómara

Hinn 15. desember 2023 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði laust til umsóknar embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Skipað verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur lokið störfum.

Umsækjendur um embættið eru eftirtaldir:

• Finnur Þór Vilhjálmsson settur héraðsdómari,
• Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður,
• Sindri M. Stephensen dósent.

Umsóknir hafa verið afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum