Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2024 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands sameinist í háskólasamstæðu

Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum - myndEfri: HÍ / Neðri: Visit North Iceland

Niðurstaða fýsileikagreiningar á auknu samstarfi eða sameiningu Háskólans á Hólum (HH) og Háskóla Íslands (HÍ) er að lagt verði til við háskólaráð beggja skóla að skólarnir sameinist. Lagt er til að rekstrarform sameinaðs skóla verði það sem kallað er háskólasamstæða og er nýnæmi hér á landi en þekkist víða erlendis þar sem hugtakið kampus er notað.

Í greiningunni segir að slíkt fyrirkomulag mun gera íslenskt háskólasamfélag sterkara í aukinni alþjóðlegri samkeppni í námi, rannsóknum og nýsköpun. Þá fellur öflug háskólasamstæða vel að nýjum áherslum Gæðaráðs háskólanna og eykur tengsl við atvinnulíf og samfélag um land allt.

Greiningin hefur verið kynnt ráðherra sem fagnar niðurstöðunni enda sé íslenskt samfélag of lítið til að reka sjö háskóla sem standist alþjóðlega samkeppni. 

,,Íslenskt samfélag er of lítið til að reka sjö háskóla sem standast alþjóðlega samkeppni og geta boðið nemendum upp á framúrskarandi nám og kennslu. Stærri háskólaeiningar og meira samstarf stuðlar að auknum gæðum. Háskólasamstæða með fjölbreytt námsframboð, öflugar rannsóknir og sterk tengsl við atvinnulíf og samfélag um land allt er spennandi kostur," segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Hún bætir því við að háskólasamstæða HÍ og HH yrði með mikla faglega breidd og með sterka og víðtæka skírskotun til samfélags og atvinnulífs, ekki síst á landsbyggðinni.

Rektorar skólanna, Hólmfríður Sveinsdóttir og Jón Atli Benediktsson, undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis í ágúst á síðasta ári ásamt háskólaráðherra að farið yrði í fýsileikagreininguna sem nú er lokið með framangreindri niðurstöðu. Háskólarnir tveir hafa lengi átt í farsælu samstarfi um rannsóknir og kennslu, t.d. á vettvangi Samstarfsnets opinberra háskóla. Þá hafa skólarnir tekið höndum saman í verkefnum styrktum af Samstarfi háskóla, m.a. um sameiginlega námsleið og ferðamálafræði og samstarf um eflingu náms í fiskeldisfræðum.  

Í skýrslu stýrihópsins er lögð áhersla á að ný háskólasamstæða efli háskólastarf á öllu landinu, styrki sókn á alþjóðlegum vettvangi og verði eftirsóknarverður kostur fyrir aðra háskóla og rannsóknastofnanir. Gert er ráð fyrir að samstæðan taki til starfa í lok þessa árs.  

Við myndun háskólasamstæðunnar verður horft til þess að skólarnir verði sjálfstæðir og að samstæðan styrki Háskóla Íslands sem leiðandi háskóla í íslensku samfélagi og Háskólann á Hólum sem sérhæfðan skóla á landsbyggðinni. Þannig yrði Háskóli Íslands flaggskipsháskóli samstæðunnar og Háskólinn á Hólum sjálfstæður kampus með starfsemi á Hólum og á Sauðárkróki. Háskólasamstæður tveggja eða fleiri sjálfstæðra skóla þekkjast víða erlendis og miða að því að styrkja háskólastarf á tilteknum svæðum. Mikilvæg tækifæri felast í nýtingu þeirrar reynslu við mótun samstæðu sem hentar íslensku háskólaumhverfi í því skyni að efla háskólastarf til framtíðar, án þess þó að auka á yfirbyggingu eða kostnað hvað stjórnskipulag varðar.  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum