Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Hreindýrakvóti ársins 2024

Hreindýr - myndSébastien Goldberg/Unsplash

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið veiðiheimildir til hreindýraveiða fyrir árið 2024 og skiptingu þeirra milli sveitarfélaga, að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun.

Alls verður heimilt að veiða 800 hreindýr á veiðitímanum, 397 kýr og 403 tarfa. Þetta er 101 hreindýrum færra en á undanförnu ári sem stafar fyrst og fremst af skorti á gögnum um vöxt og viðkomu hreindýrastofnsins árið 2023 í kjölfar banaslyss sem varð við hreindýratalningar í Sauðárhlíðum í júní það ár.

Veiðitími tarfa er frá 15. júlí til 15. september. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september.

Fyrstu tvær vikur veiðitímabilsins er veiðimönnum gert að forðast í lengstu lög að fella mylkar kýr svo draga megi eftir megni úr áhrifum veiðanna á kálfa. Þess í stað eru veiðimenn eindregið hvattir til að veiða eingöngu geldar kýr. Er í þessu sambandi bent á hlutverk og skyldur leiðsögumanna við að aðstoða og leiðbeina veiðimönnum við val á bráð.

Þá eru veturgamlir tarfar alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tarfa sem eru tveggja vetra og eldri.

Óheimilt er að veiða kálfa.

Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda.

Líkt og fyrri ár skiptist veiðin milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í meðfylgjandi auglýsingu.

Umhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimildanna.

Meðfylgjandi er auglýsing um hreindýraveiðar árið 2024.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum