Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mælti fyrir fyrstu landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, mælti fyrir fyrstu landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks á Alþingi nú í kvöld. Áætlunin felur í sér 57 aðgerðir til að koma í framkvæmd ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Landsáætlunin er liður í innleiðingu og lögfestingu samningsins hér á landi.

„Þeirri þingsályktunartillögu sem hér er lögð fram er ætlað að fela í sér skýra framtíðarsýn, kortlagningu, greiningu og mat á kostum í þjónustu og þróun réttinda fatlaðs fólks, til þess að stuðla að farsælli innleiðingu samningsins,“ sagði Guðmundur Ingi í framsöguræðu sinni.

„Áætlunin sem hér er lögð fram var unnin í miklu og góðu samráði við fatlað fólk og hagsmunasamtök þeirra, við fulltrúa sveitarfélaga og við önnur ráðuneyti.“

Aðgerðirnar í áætluninni eru fjölbreyttar og snerta fjölmörg málefnasvið, stofnanir, sveitarfélög og aðra hagaðila. Þær eru á ábyrgð níu ráðuneyta og byggja á víðtæku samráði.

Fjölmennur hópur fólks vann að gerð áætlunarinnar en alls störfuðu 11 vinnuhópar með verkefnisstjórn. Í hverjum hópi sátu fulltrúar hagsmunasamtaka fatlaðs fólks; Geðhjálpar, Landssamtakanna Þroskahjálpar og ÖBÍ réttindasamtaka, fulltrúar sveitarfélaga og fulltrúar Stjórnarráðsins, þ.e. starfsmenn ráðuneyta eða stofnana þeirra.

33 ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var skipt upp á milli vinnuhópanna og á grundvelli greiningar á stöðu hvers ákvæðis hér á landi mótuðu vinnuhóparnir tillögur að aðgerðum til að nálgast markmið samningsins.

Heildstæð stefnumótun í fyrsta sinn

Landsáætlunin er lögð fram sem tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024-2027. Alþingi hefur áður samþykkt tvær framkvæmdaáætlanir í málefnum fatlaðs fólks, fyrir árin 2017-2021 og 2012-2014, en landsáætlun er á hinn bóginn hluti af heildstæðri stefnumótun í þjónustu og þróun réttinda fatlaðs fólks. Henni er ætlað að ná til allra þeirra málefnasviða sem undir samninginn heyra.

Aðgerðirnar í áætluninni falla undir sex þætti: Vitundarvakningu og fræðslu, aðgengi, sjálfstætt líf, menntun og atvinnu, þróun þjónustu og lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Hringferð um landið

Samhliða vinnslu landsáætlunarinnar stóð Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fyrir opnum samráðsfundum um landið. Þar gafst fólki tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun þjónustu við fatlað fólk hér á landi. Samráðsfundirnir voru vel sóttir og gagnlegar umræður sköpuðust.

Í febrúar sl. sóttu auk þess um 300 manns samráðsþing í Hörpu um landsáætlunina. Að þinginu stóðu félags- og vinnumarkaðsráðuneytið ásamt forsætisráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, ÖBÍ réttindasamtökum, Landssamtökunum Þroskahjálp og Geðhjálp.

Guðmundur Ingi með landsáætlunina að aflokinni framsöguræðu sinni í kvöld. 

Frá samráðsþinginu sem fram fór í Hörpu um landsáætlunina.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum