Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2024 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Rannsókna- og nýsköpunarhús rís við Háskólann í Reykjavík

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík.  - myndHáskólinn í Reykjavík

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra veitti í dag Háskólanum í Reykjavík (HR) 200 milljóna króna stuðning til fjármögnunar undirbúnings að uppbyggingu á allt að 6000 fermetra rannsókna- og nýsköpunarhúsi við skólann. Húsið er lykillinn að frekari sókn HR í rannsóknum og kennslu í tæknigreinum og eflir samstarf skólans við atvinnulífið. Gert er ráð fyrir að húsið verði samnýtt með sprotafyrirtækjum og fyrirtækjum og stofnunum í tækniþróun og rannsóknum. Þannig er til dæmis gert ráð fyrir að áhersla verði lögð á aðstöðu fyrir öflugar byggingarannsóknir. 

Að sögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, er um að ræða mikið framfaraskref, enda verður húsið eitt það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. ,,Háskólinn í Reykjavík hefur verið mikill brautryðjandi í tæknigreinum og útskrifar yfir helming allra þeirra sem ljúka háskólaprófi í raunvísinda-, verkfræði- og tæknigreinum (STEM) hér á landi. Skólinn hefur metnað til að auka fjölbreytni námsins og bæta kennslu og rannsóknir. Til að svo megi verða þarf hann fjölbreyttara húsnæði. Ekki má heldur gleyma því að góðir háskólar eru forsenda öflugs atvinnulífs sem kallar eftir því að nemendum í tæknigreinum og verkfræði fjölgi. Við vitum að það vantar þúsundir sérfræðinga á því sviði næstu ár, ef vaxtaspár hugverkaiðnaðarins eiga að ná fram að ganga, og með sókn á þessu sviði verður auðveldara að mæta þessum þörfum.”

Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, segir að verulega sé farið að þrengja að starfsemi skólans og að nýtt rannsókna- og nýsköpunarhús myndi gjörbylta allri aðstöðu til kennslu, rannsókna og nýsköpunar. ,,Okkur vantar sveigjanleg verkefnarými og nemendadrifin verkefni eins og smíði keppnisbíla og róbóta fengju stórbætta aðstöðu í slíku húsi. Við viljum hlúa betur að hagnýtu, verktengdu námi og skapa ný tækifæri, bæði hvað varðar þjálfun nemenda, gæði rannsókna og samstarf við atvinnulífið. Við fögnum því að ráðherra veiti verkefninu þennan stuðning því hann gerir okkur kleift að ljúka forhönnun hússins og í framhaldinu getur fasteignafélag skólans vonandi fjármagnað byggingaframkvæmdirnar sjálfar.”

Gert er ráð fyrir að rannsókna- og nýsköpunarhúsið verði á næstu lóð við aðalbyggingu HR, þ.e. við Menntasveig 4, en leyfilegt byggingarmagn þar er 11.300 fermetrar. Áætlaður heildarkostnaður við bygginguna er um 3,7-4,6 ma.kr., eftir því her sérhæfð aðstaðan verður. Stefnt er að stuttum framkvæmdatíma og standa vonir til þess að húsið geti orðið tilbúið árið 2025.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum