Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kallað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2024

Norðurlandaráð auglýsir eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2024 og er þema verðlaunanna í ár sjálfbær byggingarstarfsemi, en sérstök áhersla er lögð á aðlögunarhæfan, endurnýtandi og endurnýjandi arkitektúr.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt fyrirtæki eða samtökum á  Norðurlöndum, sem hafa samþætt náttúru- og umhverfisvitund starfi sínu, eða einstaklingi sem hefur unnið mikilsvert starf í þágu náttúru og umhverfis.

Rekja má um 40 prósent allrar kolefnislosunar í heiminum til byggingarstarfsemi. Vonast dómnefnd umhverfisverðlaunanna til þess að verðlaunin geti átt þátt í að vekja athygli á sjálfbærri byggingarstarfsemi á Norðurlöndunum, sem og verið innlegg í opinbera umræðu um mikilvægi þess að minnka kolefnisfótspor byggingariðnaðarins.

Allir geta sent inn tilnefningar, en frestur til að skila þeim er til 30. apríl næstkomandi. Hægt er að tilnefna norræna einstaklinga, fyrirtæki eða samtök sem starfa á Norðurlöndum eða eru í samstarfi við aðila utan Norðurlanda. Verkefnin þurfa jafnframt að hafa tengingu við Norðurlönd.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs vekja athygli á og styðja við áhrifaríkt framtak umhverfinu til góða. Verðlaunaféð er 300.000 danskar krónur.

Hægt er að senda inn tillögur um verðlaunahafa með því að fylla út þar til gert eyðublað.

Sendið inn tillögur að tilnefningum til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2024

Frétt Norðurlandaráðs þar sem óskað er eftir tilnefningum

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum