Hoppa yfir valmynd
8. febrúar 2024 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samkomulag milli fjármála- og efnahagsráðherra og lífeyrissjóða vegna húsnæðislána lífeyrissjóða í Grindavík

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ritað undir samkomulag við 12 lífeyrissjóði um stuðning ríkissjóðs vegna húsnæðislána lífeyrissjóða til einstaklinga í Grindavík. Markmið samkomulagsins er að ríkissjóður styðji við þá fasteignaeigendur í Grindavík sem fallið hafa utan úrræða annarra lánveitenda húsnæðislána í Grindavík um niðurfellingu á vöxtum og verðbótum af lánum þeirra.

Með samkomulaginu tekur ríkissjóður að sér að greiða áfallna vexti og verðbætur af sjóðfélagalánum einstaklinga vegna fasteigna þeirra í Grindavík yfir sex mánaða tímabil. Stuðningurinn takmarkast við áfallna vexti og verðbætur af sjóðfélagalánum sem nema að hámarki samtals 50 milljónum króna fyrir gjalddaga í desember 2023 til og með maí 2024. Gert er að skilyrði að fasteign hafi verið til eigin nota lántaka.

Stuðningur ríkissjóðs tekur til lántakenda hvort sem þeir hafa óskað eftir greiðsluskjóli hjá lífeyrissjóði eða ekki. Við uppgjör ríkissjóðs skal lántaki vera jafn vel settur líkt og greiddar hafi verið áfallnar verðbætur og vextir af láni hans yfir tímabil samkomulagsins. Stuðningur ríkissjóðs nær ekki til afborgunar af höfuðstóli sjóðfélagalána.

Áætlað er að samkomulagið taki til á bilinu 150-200 sjóðfélagalána og að stuðningur ríkissjóðs vegna úrræðisins muni nema samtals um það bil 120-150 milljónum króna. Samkomulagið er gert með fyrirvara um heimild í fjárlögum.

Lántakendur skulu leita til lífeyrissjóðanna um úrræði samkomulagsins.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum