Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2024 Utanríkisráðuneytið

Áframhaldandi stuðningur við Úkraínu efstur á baugi á öryggisráðstefnunni í München

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra á öryggisráðstefnunni í München. - mynd

Vaxandi áhyggjur af stöðu alþjóðamála en breið samstaða um mikilvægi þess að styðja við varnarbaráttu Úkraínu og standa vörð um lýðræðisleg gildi voru þau málefni sem efst voru á baugi á árlegri ráðstefnu um öryggismál sem fram fór í München í Þýskalandi um helgina. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra tók þátt í ráðstefnunni og átti í tengslum við hana fjölmarga tvíhliða fundi. 

Við opnun ráðstefnunnar tók utanríkisráðherra þátt í hringborðsumræðum þar sem fjallað var um þær áskoranir sem frelsi í heiminum stafar af öfgahyggju og einræðisríkjum. Þar voru frummælendur þau Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins, Jens Stoltenberg, framkvæmdarstjóri Atlantshafsbandalagsins og Markús Söder forsætisráðherra Bæjaralands.

Utanríkisráðherra tók þátt í hringborðsumræðum um orkuöryggi á föstudag þar sem sjálfbærir orkugjafar og nauðsyn þess að hverfa frá jarðefnaeldsneyti voru helstu umræðuefni. Þar lagði ráðherra áherslu á sterka stöðu Íslands í þessum málaflokki og að dyrnar stæðu öðrum ríkjum opnar fyrir ráðgjöf Íslands á þessu sviði.

Á laugardag tók ráðherra þátt í hringborðsumræðum um öryggismál á norðurslóðum en vægi þeirra í alþjóðapólitísku samhengi hefur aukist mjög á undanförnum árum. Bjarni átti sömuleiðis fjölmarga tvíhliða fundi á ráðstefnunni m.a. með utanríkisráðherrum Palestínu, Tyrklands, Montenegró, Norður-Makedóníu og Bosníu Hersegóvínu.

„Öll umræða og samtöl hér undirstrika versnandi öryggishorfur og vaxandi spennu í alþjóðasamskiptum. Lýðræðisríki þurfa að standa saman og vera reiðubúin að verja grunngildi og alþjóðalög í orði og verki,“ segir Bjarni. 

Öryggisráðstefnan í München var haldin í sextugasta skiptið í ár og var afar vel sótt en af ríflega 900 þátttakendum voru um 50 þjóðarleiðtogar og 100 ráðherrar, ásamt fræðafólki og öðrum skoðanamótandi aðilum á sviði öryggis- og varnarmála.

Stærstur hluti ráðstefnunnar, þar á meðal ávörp þjóðarleiðtoga, er aðgengilegur í gegnum streymi, sem hægt er að nálgast á vefsíðu ráðstefnunnar.

  • Frá öryggissráðstefnunni í München. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum