Hoppa yfir valmynd
20. febrúar 2024 Utanríkisráðuneytið

Staða vinnu vegna aðstoðar við dvalarleyfishafa á Gaza

Undanfarið hefur þriggja manna sendinefnd utanríkisráðuneytisins verið að störfum í Egyptalandi til að greiða fyrir för dvalarleyfishafa með fjölskyldusameiningu frá Gaza. Sendinefndin hefur átt í góðu samstarfi við fulltrúa egypskra, ísraelskra og norrænna stjórnvalda á svæðinu.

Verkefnið hefur meðal annars falist í úrlausn praktískra atriða við mögulega fólksflutninga, afhendingu lista dvalarleyfishafa til viðeigandi aðila og samskiptum við fulltrúa fyrrnefndra stjórnvalda. 

Önnur norræn ríki hafa undanfarnar vikur komið ríkisborgurum, og í einhverjum tilvikum dvalarleyfishöfum, yfir landamærin. Hafa þau því getað veitt sendinefndinni mikilvægar leiðbeiningar og aðstoð í þessum efnum. Önnur Norðurlönd annast þó ekki framkvæmd slíkra fólksflutninga fyrir Íslands hönd, enda snýr slík aðstoð þeirra aðeins að íslenskum ríkisborgurum - en enginn íslenskur ríkisborgari er á Gaza. 

Einstakt verkefni

Eins og fram hefur komið er um umfangsmikið verkefni að ræða, en fyrir liggur að stjórnvöld munu eingöngu vinna eftir diplómatískum leiðum. Fulltrúar stjórnvalda hafa þannig fylgt öllum ferlum sem stofnanir í Egyptalandi og Ísrael fara fram á. 

Í samskiptum við ísraelsk stjórnvöld hefur komið fram að listi íslenskra stjórnvalda sé einstakur fyrir þær sakir að þar sé engan íslenskan ríkisborgara að finna og engan með tvöfalt ríkisfang, heldur eingöngu dvalarleyfishafa. Af þessari ástæðu megi gera ráð fyrir að málið þarfnist sérstakrar skoðunar af þeirra hálfu. 

Er þetta í samræmi við það sem fram hefur komið í máli íslenskra stjórnvalda um að verkefnið sé einstakt hvað framangreint varðar, en ekki síður þann hlutfallslega fjölda sem hér er um að ræða.

Líkt og af þessu má ráða liggur ekki fyrir hvernig endanleg tímalína málsins verður, en áfram verða veittar upplýsingar um framvinduna hér á vef ráðuneytisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum