Hoppa yfir valmynd
29. febrúar 2024 Heilbrigðisráðuneytið

Tímamótasamningur um nám í heyrnarfræðum á háskólastigi

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ), Háskólinn í Örebro í Svíþjóð og Háskólinn á Akureyri hafa gert með sér samning sem gerir kleift að bjóða upp á háskólanám í heyrnarfræðum í fyrsta sinn hér á landi. Samningurinn var undirritaður í dag. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir samninginn marka tímamót: „Það hefur verið skortur á sérþjálfuðum heyrnarfræðingum hér á landi. Nú má vænta þess að þeim fjölgi á næstu árum og að hægt verði að stórbæta þjónustu við fólk með heyrnarskerðingu hér á landi.“

Samkvæmt samningnum mun Háskólinn í Örebro annast fræðilega kennslu nemenda í gegnum fjarnám í samvinnu við Háskólann á Akureyri sem hefur áralanga reynslu af framkvæmd fjarnáms á heilbrigðisvísindasviði í samvinnu við erlenda háskóla. Öll verkleg þjálfun nemenda verður á hendi HTÍ í umboði Háskólans í Örebro (Örebro Universitet). Kennsla hefst næsta haust og verða a.m.k. fjórar námsstöður í boði ár hvert.

Það hefur verið baráttumál HTÍ um árabil að komið verði á fót námi í heyrnarfræðum á háskólastigi hér á landi. „Með þessum samstarfssamningi er loks tryggt að íslensk heyrnarþjónusta getur tryggt framboð af sérmenntuðum heyrnarfræðingum en þarf ekki að leita eftir erlendum sérfræðingum til starfa líkt og þurft hefur síðasta áratug. Nú fáum við hágæða háskólanám og innleiðum jafnframt verklega þjálfun hér á landi sem veitir íslenskum heyrnarfræðingum enn fremur ómetanlega reynslu.“ segir Kristján Sverrisson, forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands.

„Við hjá Háskólanum í Örebro erum stolt af þessu sænsk-íslenska samstarfi sem hefur skilað glænýrri námsbraut á BA-stigi í heyrnarfræðum. Við hlökkum til samstarfsins og áframhaldandi þróunar þess og fögnum gagnkvæmum ávinningi og nýjum tækifærum sem það mun án efa hafa í för með sér“ segir Johan Schnürer, rektor háskólans.

Landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu hefur komið að undirbúningi þessa samnings og fyrirkomulagi námsins. Að mati ráðsins er það fagnaðarefni að háskólanemum á Íslandi hafi með þessum hætti verið tryggt aðgengi að þessari mikilvægu menntun. Með því að flytja námið hingað heim séu auknar líkur á að þeir sem ljúka námi vilji starfa við sérgrein sína hér á landi.

Frá undirritun samnings um nám í heyrnarfræðum

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum