Hoppa yfir valmynd
15. apríl 2024 Matvælaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

Flutningur ráðuneytisstjóra milli forsætis- og matvælaráðuneytis

Benedikt Árnason mun taka taka við embætti ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu og Bryndís Hlöðversdóttir mun taka við embætti ráðuneytisstjóra í matvælaráðuneytinu. - mynd
Samkomulag hefur náðst milli forsætis- og matvælaráðherra og ráðuneytisstjóra í þeim ráðuneytum um flutning hlutaðeigandi ráðuneytisstjóra milli ráðuneyta.

Bryndís Hlöðversdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, mun frá og með 15. apríl 2024 taka við embætti ráðuneytisstjóra í matvælaráðuneytinu. Samtímis mun Benedikt Árnason, ráðuneytisstjóri í matvælaráðuneytinu, taka við embætti ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum