Hoppa yfir valmynd
15. apríl 2024 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra undirstrikaði staðfastan stuðning Íslands á fundi með forsætisráðherra Úkraínu

Denys Shmyhal, forsætisráðherra Úkraínu, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, á Keflavíkurflugvelli í dag. - mynd

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra átti fund með Denys Shmyhal, forsætisráðherra Úkraínu, í dag. Fundur ráðherranna fór fram í flugstöðinni í Keflavík, þar sem úkraínski forsætisráðherrann var í stuttu stoppi á leið sinni til Bandaríkjanna.

Forsætisráðherrann fór yfir stöðuna á vígvellinum í Úkraínu, sem hefur farið ört versnandi að undanförnu eftir linnulausar dróna- og eldflaugaárásir Rússa, meðal annars á orkuinnviði landsins. Þá er skortur á skotfærum, bæði til loftvarna og fyrir stórskotalið, farinn að hamla varnarbaráttu Úkraínu verulega, og mögulegri gagnsókn. Framhaldið veltur á hraða og getu Vesturlanda til að veita Úkraínu frekari stuðning gegn ólöglegu innrásarstríði Rússa.

„Sem fyrr er stuðningur Íslands við varnarbaráttu Úkraínu ófrávíkjanlegur, enda stendur þjóðin nú í blóðugu varnarstríði við Rússland ekki bara til að verja tilverurétt sinn heldur sömuleiðis til að standa vörð um þau gildi sem við deilum,“ segir Þórdís Kolbrún. „Það var afar kærkomið að fá tækifæri til að undirstrika enn og aftur staðfastan stuðning okkar við varnarbaráttu þeirra, augliti til auglitis við forsætisráðherrann. Nú sem aldrei fyrr, þegar blikur eru á lofti í baráttu þeirra við Rússa, er afar brýnt að við sýnum samstöðu okkar og stuðning í verki.“  

Á fundi ráðherranna lýsti Þórdís Kolbrún áhyggjum Íslands af stöðunni og ítrekaði yfirlýstan ásetning íslenskra stjórnvalda um frekari stuðning til handa Úkraínu. Greindi hún frá því að þingsályktunartillaga um stuðning við Úkraínu til næstu fimm ára  hafi verið lögðfram á Alþingi 19. mars síðastliðinn og yrði senn afgreidd. Þá væri góður gangur í vinnu við gerð tvíhliða samnings milli landanna um öryggissamstarf og langtímastuðning. 

Loks áréttaði utanríkisráðherra stuðning Íslands við friðarformúlu Úkraínuforseta, sem unnið hefur verið að síðan síðasta sumar, sem og fjárframlag Íslands til skotfærakaupa fyrir Úkraínu sem Tékkland hefur milligöngu um.  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum