Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Forgangsmál að auka flutningsgetu á raforku til Þórshafnar

Starfshópurinn ásamt sveitarstjórnarfulltrúum við Font, Langanesi. - mynd

Forgangsmál er að stórauka flutningsgetu á raforku til Þórshafnar og nágrennis eigi að tryggja samkeppnishæfni svæðisins, greiða fyrir orkuskiptum og skapa forsendur fyrir sókn nýrra atvinnuvega. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði til að vinna tillögur um aðgerðir sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins og stuðlað geta að því að efla samfélagið á Langanesi.

Starfshópurinn var skipaður þeim Njáli Trausta Friðbertssyni, sem var formaður hópsins, Berglindi Hörpu Svavarsdóttur og Steingrími J. Sigfússyni.

Er það mat starfshópsins að  forgangsmál sé að stórauka flutningsgetu á raforku til Þórshafnar og nágrennis og að beinast liggi við að slíkt verði gert með nýrri og öflugri raflínu frá Öxarfirði til Þórshafnar, sem yrði hluti af flutningskerfi Landsnets.

Í skýrslu sinni leggur hópurinn enn fremur til að ráðuneytið vinni áfram tillögur um friðlýsingarkosti á utanverðu Langanesi og að stofnaður verði þjóðgarður í sátt við íbúa og hagsmunaaðila. Samhliða verði unnið að uppbyggingu innviða og m.a. horft til þess að koma upp starfstöð í náttúrurannsóknum, sem er í samræmi við tillögur nefndar fulltrúa fimm ráðherra um málefni byggðarinnar við Bakkaflóa frá árinu 2018.

Þá leggur starfshópurinn til aðgerðir til þess að styðja við græna atvinnuuppbyggingu á svæðinu, að stutt verði við jarðhitaleit á svæðinu og að skoðaðir verði möguleikar á orkuöflun á svæðinu í samstarfi við orkufyrirtæki.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Ég fagna tillögum starfshópsins, sem sýna enn og aftur mikilvægi þess að orkumálum okkar verði komið í betri farveg. Skýrslunni verður fylgt eftir og er eitt af mínum næstu verkum að heimsækja svæðið og ræða við heimafólk um þessi mál.“

Skýrsla starfshóps um eflingu samfélagsins á Langanesi á málefnasviði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum