Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Reiknivél vegna fyrirhugaðra breytinga á örorkulífeyriskerfinu

Reiknivél hefur verið opnuð vegna fyrirhugaðra breytinga á örorkulífeyriskerfinu. Þar getur fólk borið saman hvað það fær í örorkulífeyri í núverandi greiðslukerfi og hvað það myndi fá í nýju greiðslukerfi. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, setti reiknivélina í loftið á kynningarfundi í Þjóðmenningarhúsinu vegna breytinga á örorkulífeyriskerfinu.

Athugið að reiknivélin miðast við þau sem hafa áunnið sér full réttindi í íslenska almannatryggingakerfinu, eru búsett hér á landi og hafa 75% örorkumat. Fólk sem þetta á ekki við um og sem slær inn sínar upplýsingar í reiknivélina mun fá rangar niðurstöður.

Ert þú með full réttindi í íslenska almannatryggingakerfinu, ert búsett/ur hér á landi og að auki með 75% örorkumat? Þá getur þú notað reiknivélina:

Athugaðu að greiðslurnar munu lögum samkvæmt hækka árlega og aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Í frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir því nýmæli að það sama muni gilda um frítekjumörkin.

Uppfært 24. apríl 2024: Ath. að einstaklingur sem er giftur eða í sambúð skal slá inn helming af samanlögðum fjármagnstekjum hjóna eða sambýlisfólks.

 

Bætt kjör og meira öryggi

Guðmundur Ingi kynnti á fundinum viðamiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu undir yfirskriftinni „Öll með“. Markmið breytinganna er að einfalda örorkulífeyriskerfið, draga úr tekjutengingum og gera kerfið réttlátara.

Auk ráðherra fluttu á fundinum innlegg þær Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK, Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Huld Magnúsdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar. Fundarstjóri var Þuríður Harpa Sigurðardóttir.

„Fólk á ekki að mæta þröskuldum heldur þjónustu,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

„Við umbyltinguna tökum við betur utan um fólk en áður, hvort sem það tekur þátt á vinnumarkaði eða ekki. Leiðarljósið er skýrt: Að stuðla að bættum kjörum og meira öryggi og vellíðan fólks. Grunnhugsunin er sú að við séum öll með og skiptum öll máli.“

Öll með

Fyrirhugaðar breytingar fela í sér bætta þjónustu, mikilvæga hvata til atvinnuþátttöku og bætt kjör með betra og einfaldara greiðslukerfi. Þá er stuðningur aukinn við fólk meðan á endurhæfingu þess stendur, samvinnu þjónustuaðila komið á og áhersla lögð á að hindra að fólk falli á milli kerfa.

Lengi hefur verið brýnt að endurskoða örorkulífeyriskerfið og mælti ráðherra á dögunum fyrir frumvarpi á Alþingi vegna breytinganna.

Frumvarpið var unnið í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og er afrakstur víðtæks samráðs við helstu haghafa, stofnanir, önnur ráðuneyti og aðra hlutaðeigandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum