Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Opnun mælaborðs farsældar barna

Þann 29. apríl kl 9:00-9:45 býður mennta- og barnamálaráðuneytið til kynningar á Mælaborði farsældar barna, nýju verkfæri sem er hannað til að styðja við innleiðingu farsældarlaganna og innleiða gagnadrifna stefnumótun hvað hag barna varðar. Mælaborðið hefur verið í þróun frá því ritun farsældarlaganna hófst og farið fram í umfangsmiklu samráði við önnur ráðuneyti, fræðasamfélagið, hagaðila, sveitarfélög og ekki síst börn.

Í mælaborðinu eru fimm grunnstoðir farsældar skilgreindar: Menntun, heilsa og vellíðan, öryggi og vernd, lífsgæði og félagsleg staða, þátttaka og félagsleg tengsl. En umræddir þættir ramma inn helstu forsendur þess að börn nái að vaxa og dafna í nútíð og framtíð. Undir hvern grunnþátt falla tölfræðigögn er gefa mynd af stöðu hvers þáttar og lýsa farsæld barna hér á landi með heildstæðum hætti.

Hlutverk mælaborðsins er að veita yfirsýn yfir stöðu farsældar barna á Íslandi á hverjum og einum tíma, með áherslu á viðkvæma hópa og samfélagslegar áskoranir. Enn fremur er því ætlað að fylgjast með þróun farsældar yfir tíma og leggja mat á árangur innleiðingar farsældarlaga. Gögnin eru birt út frá fjölda bakgrunnsbreyta og hægt er að skoða þau með tilliti til landshluta og átta stærstu sveitarfélaganna.

  • Fundarstjóri býður gesti velkomna, Heiða Björg Hilmisdóttir formaður Sambands Íslenskra Sveitarfélaga
  • Opnun mælaborðs farsældar barna, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
  • Þróun og saga mælaborðsins, Kolbeinn Stefánsson, formaður stýrihóps verkefnisins og dósent við Háskóla Íslands
  • Hagnýting gagna í stefnumótun - kynning á eiginleikum mælaborðsins, Hjördís Eva Þórðardóttir teymisstjóri í mennta og barnamálaráðuneyti
  • Lokaorð frá fundarstjóra, Heiða Björg Hilmisdóttir
  

Við hlökkum til að sjá þig og fagna þessu mikilvæga skrefi í þágu farsældar barna á Íslandi. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum