Hoppa yfir valmynd
22. maí 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ný reglugerð skýrir hlutverk í kringum mótun loftslagsaðgerða

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um verkefnisstjórn og áætlanir á sviði loftslagsmála. Gert er ráð fyrir að við setningu reglugerðarinnar verði skipuð ný verkefnisstjórn loftslagsaðgerða.

Í lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál er kveðið á um að ráðherra beri ábyrgð á gerða tveggja áætlana á sviði loftslagsmála. Annars vegar aðgerðaáætlun í loftslagsmálum (AÁL) og hins vegar áætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum (AÐL; aðlögunaráætlun). Samkvæmt lögunum skipar ráðherra verkefnisstjórn vegna gerðar aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum sem mótar tillögur að aðgerðum og hefur umsjón með að þeim sé hrundið í framkvæmd.

Fráfarandi verkefnisstjórn hefur nýlokið við afgreiðslu uppfærslu aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum sem kynnt verður á næstunni og undirbúningur aðlögunaráætlunar hefur verið í gangi undanfarinn ár. Sjá niðurstöður samráðsferlis og skýrslu stýrihóps vegna aðlögunaráætlunar.

Reglugerðin þjónar m.a. þeim tilgangi að skýra eftirfarandi:

  • Að verkefnisstjórn hafi umsjón með gerð beggja áætlana;
  • Að í stjórninni hafi sæti fulltrúar allra ráðuneyta auk fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga;
  • Lögin kveða ekki á um að öll ráðuneyti eigi fulltrúa . Ljóst þykir þó að umfang málaflokksins hefur vaxið mikið og hafa fleiri fulltrúar bæst við verkefnisstjórnina á undanförnum árum.  Mikilvægt er að öll ráðuneyti hafi aðkomu að mótun og samþykkt loftslagsaðgerða og sendir slík skipun skýr skilaboð um að loftslagsmálin krefjist breiðs eignarhalds;
  • Hlutverk og skipulag aðlögunaráætlunar sem eru ekki skilgreind í núverandi lögum;
  • Aðkomu starfsfólks Umhverfisstofnunar og Veðurstofu Íslands að vinnu verkefnastjórnar og gerð áætlananna og ráðgefandi hlutverk Orkustofnunar.

Vinna við reglugerðina er hluti af því verkefni að styrkja stjórnsýslu loftslagsmála og helst í hendur við áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál sem var síðast á þingmálaskrá 154. löggjafarþings.

Athygli er vakin á því að umsagnarfrestur vegna reglugerðarinnar í samráðsgátt stjórnvalda er til 5. júní nk.

Reglugerð um verkefnisstjórn vegna gerðar og eftirfylgni áætlana á sviði loftslagsmála

 


 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum