Hoppa yfir valmynd
27. maí 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Barnamenningarsjóður styrkir 41 verkefni: Kraftmikið menningarár í vændum

Mikil gleði var í Safnahúsinu í gær þegar tilkynnt var um úthlutun úr Barnamenningarsjóði. - myndBirgir Ísleifur

Tilkynnt hefur verið um úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir árið 2024. Sjóðurinn styrkir 41 metnaðarfullt verkefni og er heildarupphæð úthlutunarinnar 102,4 milljónir króna. Alls bárust 117 umsóknir og var sótt um 383 milljónir króna. Úthlutun var tilkynnt við athöfn í Safnahúsinu á degi barnsins, sunnudaginn 26. maí 2024.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra og Guðný Hilmarsdóttir formaður stjórnar Barnamenningarsjóðs ávörpuðu gesti og greindu frá úthlutun. Kammersveit skipuð ungum listamönnum, þeim Sigrúnu Mörtu Arnaldsdóttur, Sólu Björnsdóttur og Sveindísi Eir Steinunnardóttur, lék tvö lög við góðar undirtektir.

„Það er blómlegt fram undan í barnamenningu og gleður mig ósegjanlega mikið að sjá hversu margar umsóknir bárust. Það segir okkur að efling ungra listhuga er eftirsóknarvert viðfangsefni hjá listafólkinu okkar sem lýsir metnaði fyrir skapandi framtíð landsins og það mun skila sér margfalt til baka til okkar allra. Því langar mig að þakka öllum þeim er sóttu um, fyrir hugmyndirnar og kraftinn því það er ekki alltaf auðsótt að koma hugmyndum í framkvæmd og það krefst eldmóðs sem er svo sannarlega til staðar hér,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Hæsta styrkinn 11,5 milljónir, fær Reykjavíkurborg í samstarfi við Akureyrar- og Ísafjarðarbæ fyrir Leikskólaverkefnið sem byggir á samstarfi leik- og tónlistarskóla í öllum þremur sveitarfélögunum. Nemendur í tónlistarskóla vinna með elstu börnum leikskóla og lýkur verkefninu með sameiginlegum lokatónleikum. Næsthæsta styrkinn, 6 milljónir, fær Vestfjarðarstofa fyrir barnamenningahátíð Vestfjarða, Púkann 2025, en hátíðin fer fram vítt og breitt um Vestfjarðakjálkann. Þriggja manna fagráð fjallaði um umsóknirnar og menningarmálaráðherra samþykkti tillögu stjórnar sjóðsins um úthlutun.

Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldisins með ályktun Alþingis á hátíðarfundi 18. júlí 2018. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Sjóðurinn var festur í sessi 23. maí 2023 með Þingsályktun um aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024–2028.

Sjá nánar um verkefnin hér.

 

Styrkþegi

Heiti verkefnis

Úthlutun í kr.

Reykjavíkurborg

Leikskólaverkefnið

11.500.000

Vestfjarðastofa ses.

Púkinn 2025

6.000.000

Listasafn Íslands

Stattu og vertu að steini!

5.800.000

Austurbrú ses.

Uppspretta

5.000.000

Reykjanesbær

Virkjun skapandi lista meðal barna í Reykjanesbæ

5.000.000

Handbendi Brúðuleikhús ehf.

Studio Handbendi

4.860.000

Hringleikur - sirkuslistafélag

Sirkusinn og ég - Flipp Festival

4.498.000

Listasafn Árnesinga

Hringrásir - list og vísindi

4.000.000

Reykjavíkurborg

BIG BANG tónlistarhátíð

4.000.000

Afrika-Lole,áhugamannafélag

FAR Fest Afríka Barnamenning 24 - 25

3.700.000

Trúðavaktin, félagasamtök

Trúðavaktin, íslensku sjúkrahústrúðarnir

3.665.000

Dansgarðurinn, félag

Dansfræðsludagar - Dans fyrir alla

3.000.000

Reykjavík Dance Festival.

Tilfinningaskólinn

3.000.000

Heimili kvikmyndanna - Bíó Paradís ses.

Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík

3.000.000

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Hvað er með ásum?

3.000.000

Dansverkstæðið

Barna- og fjölskyldudagskrá á Dansverkstæðinu

3.000.000

Eva Rún Þorgeirsdóttir

Svakalega sögusmiðjan - raddir barna

2.820.000

Reykjavíkurborg

Sögur - Verðlaunahátíð barnanna

2.600.000

Tónlistarfélag Árbæjar

Ungir lagahöfundar - Lagasmíðabúðir í Tónhyl fyrir 16 - 18 ára

2.295.000

Söngskólinn í Reykjavík

Oliver! - hátíðaruppfærsla Ungdeildar Söngskólans í Reykjavík

2.000.000

Kópavogsbær

Tímamót og fögnuður. Raddir barna í Kópavogi

1.725.000

Grunnskólinn á Drangsnesi

Goðdalir - sviðslistasmiðja barna

1.620.000

LungA-Listahátíð ungs fólks,AL

LungA Ungar: Fjölskylduhátíð og listasmiðjur fyrir börn og ungmenni

1.593.000

Kammerhópurinn Reykjavík-Barokk

Krakkabarokk á ferð og flugi

1.500.000

Langanesbyggð

Tungubrestur og listsköpun

1.435.000

Kópavogsbær

Fjölþjóðlegir tónleikar á Barnamenningarhátíð 2025 í Salnum.

1.340.000

Minjasafn Reykjavíkur

Vaxtaverkir - sjónlýsingar og táknmálsleiðsögn

1.060.000

Sumartónleikar Skálholtskirkju

Barnamenningarhátíð Sumartónleikanna í Skálholti

1.000.000

Menningarfélagið Rebel Rebel

Viðburðir fyrir börn á Hamraborg Festival 2024

1.000.000

Listahátíð í Reykjavík

Yes Yes Yes

975.000

Kópavogsbær

Together. Fjöltyngdar listsmiðjur fyrir börn og fjölskyldur

960.000

Kol og salt ehf

FURÐUVERUR Í MYRKRINU

800.000

Kópavogsbær

Blásum lífi í þjóðsögurnar

663.000

Natalia Duarte Jeremias

A moment of music with Natalia

600.000

Norræna húsið

Hvernig tala ég um bækur?  myndlestur, samtal og fræðsla

560.000

Tónskáldafélag Íslands

Lúðrasveitargjörningur á Myrkum Músíkdögum

530.000

Náttúruskólinn, félagasamtök

Barnamenningardagurinn

510.000

Fjarðabyggð

Fjölbreyttar listasmiðjur fyrir börn í Fjarðabyggð

500.000

Eva Rún Snorradóttir

Býr barn hér?

500.000

Alþjóðlega tónlistarakademian í Hörpu

HIMA 2024

500.000

Emma Louise Sanderson

Fjallabyggð Mural project and Children's Workshop

300.000

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum