Hoppa yfir valmynd
10. október 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tímamótasamningar um svæðisbundin farsældarráð í öllum sveitarfélögum landsins

Mennta- og barnamálaráðherra, ásamt stjórnendum landshlutasamtaka sveitarfélaga: Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, Jóhanna Ösp Einarsdóttir, Páll Snævar Brynjarsson, Guðveig Eyglóardóttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Regína Ásvaldsdóttir, Katrín M. Guðjónsdóttir, Bjarni Guðmundsson, Anton Kári Halldórsson, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Lára Halldóra Eiríksdóttir, Berglind Kristinsdóttir og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir - mynd

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag samninga við sjö landshlutasamtök sveitarfélaga um ráðningu verkefnisstjóra sem leiða mun undirbúning að stofnun svæðisbundins farsældarráðs í hverjum landshluta fyrir sig. Með samningunum hafa öll sveitarfélög landsins skuldbundið sig til þess að hefja vinnu við að hrinda 5. grein laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í framkvæmd. Markmiðið er að börn og foreldrar geti fengið aðgang að samþættri þjónustu við hæfi, án hindrana.

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi riðu á vaðið í vor og skrifuðu undir fyrsta samninginn. Um er að ræða viðaukasamning við sóknaráætlanir landshluta.

„Við höfum átt ótrúlega gott samstarf við sveitarfélögin, bæði Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök, sveitarstjórnarfólk og bæjarstjóra allt í kringum landið, bæði við ritun þessara laga en ekki hvað síst við innleiðingu þeirra. Þetta er langtímaverkefni. Nú erum við að stíga næsta skref, að láta nýju farsældarsvæðin virka eins og þau eru hugsuð þar sem að ólíkir aðilar vinna saman í hverjum og einum landshluta að því að bæta hag barna og ungmenna,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra við undirritun samninganna.

Frá undirritun samninga á Hilton Reykjavík Nordica í dag

Samningurinn er byggður á niðurstöðum starfshóps mennta- og barnamálaráðuneytisins um samhæfða svæðaskipan í málefnum barna. Að mati starfshópsins voru mikil tækifæri fólgin í því að starfrækja farsældarráðin eftir gildandi landshlutaskiptingu sveitarfélaga enda þau vön að vinna á þeim grunni. Það er því einkar ánægjulegt að sveitarstjórnarfólk landsins hafi tekið undir þessa megintillögu hópsins.

Verkefnisstjórinn mun vinna í nánu samstarfi við forsvarsmenn innleiðingar farsældarþjónustu í sveitarfélögum landshlutans og leiða saman það fagfólk sem vinnur að málefnum barna í því skyni að undirbúa svæðisbundið farsældarráð. Samningurinn er gerður til tveggja ára og áætlað er að fyrir lok samningstímans hafi farsældarráð landshlutans verið kallað saman og undirbúningur vinnu við fyrstu áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða í þágu farsældar barna hafin.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta