Hoppa yfir valmynd
2. maí 2025 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Fyrsta skóflustungan tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði

Fyrsta skóflustungan tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði - myndKjartan Örn Júlíusson

Fyrsta skóflustunga var í dag tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Birna Sif Atladóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar í Ási, og Grétar Aðalsteinsson, heimilismaður í Ási, tóku skóflustungu að nýja heimilinu sem mun rúma 44 manns.

Það eru Grundarheimilin sem byggja hjúkrunarheimilið og leigja ríkinu með leigusamningi til 20 ára. Grund hefur rekið Ás frá árinu 1952 og sinnt öldrunarþjónustu í Hveragerði og nágrenni í yfir sjötíu ár.

Í dag eru heimilismenn í Ási 111 talsins en verða 138 þegar nýja hjúkrunarheimilið verður tekið í notkun. Til að koma byggingunni fyrir þarf að fjarlægja nokkur minni hús á staðnum með eldri rýmum og sameiginlegum baðherbergjum. Öll herbergin á nýja hjúkrunarheimilinu verða einbýli með baðherbergjum. Byggingin verður 2.680 fermetrar og heildarkostnaður um 2,8 milljarðar króna.
 

„Það er mér sönn ánægja að taka fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili í því ágæta sveitarfélagi Hveragerði. Þessi framkvæmd bæði fjölgar hjúkrunarrýmum og leysir af hólmi eldri rými sem voru komin til ára sinna. Ég óska Hvergerðingum innilega til hamingju með þetta og við munum halda áfram á sömu braut á landsvísu eins og ríkisstjórnin hefur lofað,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

 

„Þessi framkvæmd er mjög mikilvæg til að koma til móts við breyttar og auknar þarfir og kröfur þeirra sem dvelja nú og munu dvelja framvegis á hjúkrunarheimilum landsins.  Allir verða með sitt eigið herbergi og sér baðherbergi.  Við á Grundarheimilunum erum afar þakklát félags- og húsnæðismálaráðherra að treysta okkur fyrir þessu góða verkefni,“ segir Gísli Páll Pálsson, stjórnarformaður Grundarheimilanna.

 

„Starfsemin í Ási er ein af perlum bæjarins og er sannarlega hluti af einstökum gæðum Hveragerðis. Nýtt hjúkrunarheimili er hluti af metnaðarfullri framtíðarvegferð Áss, sögulegri uppbyggingu Hveragerðisbæjar og mun auka við gæði og velferð í bæjarfélaginu,“ segir Pétur Georg Markan, bæjarstjóri í Hveragerði.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta