22. september 2026 /
Forsætisráðuneytið
Utanríkisráðuneytið

Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

{image.Description}
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra verða í dag viðstaddar setningu 81. allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í New York í Bandaríkjunum þar sem leiðtogar 193 aðildarríkja samtakanna safnast saman þessa vikuna til að ræða helstu áskoranir í alþjóðsamfélaginu.

Forsætisráðherra átti í gær m.a. fund með Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, en hann lætur senn af störfum og er þess vænst að nýr aðalframkvæmdastjóri verði valinn á næstu vikum. Í kvöld sækir forsætisráðherra móttöku Bandaríkjaforseta í tilefni allsherjarþingsins.

„Ég ræddi við Antonio Guterres framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um þær áskoranir sem ríki heimsins og Sameinuðu þjóðirnar standa frammi fyrir á okkar tímum. Framkvæmdastjórinn þakkaði fyrir gott samstarf og stuðning Íslands og ég kom á framfæri þakklæti fyrir hans störf sömuleiðis. Á allsherjarþinginu leggur Ísland áfram höfuðáherslu á að tala fyrir friði og virðingu fyrir alþjóðalögum. Það eru hagsmunir Íslands og heimsins alls að efla Sameinuðu þjóðirnar til að tryggja fullveldisrétt allra ríkja og leita friðsamlegra lausna á deilumálum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir ólöglegt innrásarstríð Rússa í Úkraínu, ástandið í Mið-Austurlöndum og mannréttindi setja sterka mynd á dagskrá vikunnar. „Ísland tekur virkan þátt í umræðunum hér í New York í vikunni og leggur þannig sín lóð á vogarskálarnar. Þó að sótt sé að alþjóðalögum og alþjóðakerfinu finn ég fyrir skýrum ásetningi velflestra ríkja heims að varðveita þau gildi og þær stofnanir sem vel hafa reynst undanfarin áttatíu ár.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Forsætisráðherra tók í gær þátt í viðburði á vegum leiðtoga Brasilíu, Kanada, Kenía og Evrópusambandsins um mikilvægi þess að standa vörð um alþjóðasamstarf og hún flutti einnig lokaávarp á hliðarviðburði á vegum New York-borgar um loftslagsmál en þau mál eru í brennidepli alla vikuna. Þess má geta að forsætisráðherra er meðal á þriðja tug þjóðarleiðtoga sem skrifar undir áskorun þess efnis að fyrirtæki og þjóðir heims tryggi gagnsæi við þróun gervigreindar, öryggi og eftirlit.

Utanríkisráðherra fundaði með Malala Youzafzai, handhafa friðarverðlauna Nóbels og voru réttindi kvenna og stúlkna í Afganistan þar til umræðu en Ísland hefur sett þau á oddinn, m.a. í tengslum við setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna 2025-2027. Þorgerður hélt einnig ávarp á hliðarviðburði kjarnahóps um réttindi hinsegin fólks sem líkt-þenkjandi ríki hjá Sameinuðu þjóðunum halda úti og hún sat líka fund um þróunarmál sem Írar boðuðu til. Enn fremur sótti utanríkisráðherra fund með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þar sem saman komu utanríkisráðherrar sjö norðurslóðaríkja.

Malala Youzafzai og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Eftir að setning allsherjarþingsins í dag hefur farið fram talar forseti Brasilíu, Luiz Inácio Lula da Silva, venju samkvæmt fyrstur í umræðum og í kjölfarið verður röðin komin að Donald Trump Bandaríkjaforseta. Síðan koma leiðtogar heims hver á fætur öðrum.