Fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík
Ríkisstjórnin fjallaði í dag um niðurstöður þess hluta endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík sem nú liggur fyrir. Niðurstöðurnar benda til þess að forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík séu ásættanlegar að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar.
Í apríl síðastliðnum var það mat ríkisstjórnarinnar að ekki væru að svo stöddu forsendur til að hefja skólahald að nýju í Grindavík eða stuðla að aukinni búsetu barna í bænum. Þá lágu ekki fyrir skýrt skilgreind viðmið um ásættanlega áhættu sem gætu stutt slíkar ákvarðanir.
Síðan þá hefur verið unnið að endurskoðun áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavík. Vinnan hefur meðal annars beinst að öryggi við daglega dvöl í bænum og við hugsanlega rýmingu, samfelldu skólahaldi, velferð barna og öryggi húsnæðis. Fjöldi sérfræðinga, hagaðila og Grindvíkinga hafa tekið þátt í vinnunni.
Vinnu varðandi þessa afmörkuðu þætti áhættumatsins er nú lokið og verða niðurstöður kynntar á íbúafundi í Grindavík í kvöld. Vinnu við heildstætt áhættumat fyrir Grindavík verður haldið áfram og verður það endurskoðað reglulega eftir því sem aðstæður, þekking og reynsla þróast.
Niðurstöður vinnunnar benda til þess að unnt sé að halda áhættu fyrir fólk sem dvelur eða starfar í Grindavík innan sambærilegra marka og í öðrum byggðarlögum sem búa við langvarandi náttúruvá, að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og öryggisráðstafanir virkar. Aðstæður í Grindavík eru þó áfram sérstakar þar sem ógnin er viðvarandi allan sólarhringinn og allt árið þar til goslokum hefur verið líst yfir.
Ríkisstjórnin telur því að forsendur fyrra mats hennar frá 10. apríl sl. hafi breyst. Niðurstöðurnar fela þó ekki í sér að óvissu vegna náttúruvár sé lokið. Áfram þarf að fylgjast náið með þróun mála og tryggja að öryggisráðstafanir, s.s. vöktun, viðvörunakerfi og rýmingaráætlanir, séu ávallt virkar. Við ákvarðanir um búsetu og skólahald þarf jafnframt að leggja sérstaka áherslu á hagsmuni og velferð barna. Niðurstöðurnar skapa þó grundvöll fyrir Grindavíkurbæ, ríkið og aðra hlutaðeigandi aðila til að taka næstu skref við endurreisn Grindavíkur, m.a. með því að hefja markvisst og í áföngum undirbúning að því að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum, kjósi þeir það.