22. september 2026 /
Innviðaráðuneytið

Innviðaráðherra mælti fyrir heildarlögum um leiðarmerki og öryggi siglinga

{image.Description}

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti í  gær á Alþingi fyrir nýjum heildarlögum um leiðarmerki og öryggi siglinga sem lagt er til að komi í stað laga um vitamál (nr. 132/1999). Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á síðasta þingi en er nú endurflutt.

Í frumvarpinu segir að markmið með nýjum lögum sé að tryggja öruggar og greiðar siglingar við Ísland með notkun vita og annarra leiðarmerkja.

Með frumvarpinu er stefnt að því að einfalda rekstur leiðbeiningakerfa siglinga á Íslandi, gera skiptingu verkefna milli aðila skýrari og mynda samhljóm við aðra málaflokka samgangna án þess að dregið verði úr kröfum um öryggi. Loks er nýjum lögum ætlað að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í málaflokknum.

Ákvæði um áhættumat siglinga

Í frumvarpinu er nýtt ákvæði um áhættumat siglinga en ákall hefur verið um að tryggja lagastoð fyrir slíku áhættumati og framkvæmd þess. Í frumvarpinu er einnig að finna heimild fyrir ráðherra til að setja reglugerð með nánari ákvæðum um áhættumat siglinga. Með þessu nýja ákvæði verður tryggt að mannvirki séu ekki reist í eða á hafi nema áhættumat siglinga, og þær mildunaraðgerðir sem áhættumatið kveður á um, hafi verið framkvæmt.

Frumvarpdrög voru unnin í nánu samráði við Landhelgisgæslu Íslands, Samgöngustofu og Vegagerðina. Frumvarpið var fyrst kynnt í samráðsgátt í janúar og febrúar sl.