22. september 2026 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Losun dregst saman en frekari aðgerða þörf til að markmið náist

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Góðu fréttirnar eru þær að við erum að þokast í rétta átt og sjáum örlítinn heildarsamdrátt í losun á milli ára. En slæmu fréttirnar eru þær að við erum langt á eftir áætlun. Þetta þarf að gerast miklu hraðar ef við ætlum að ná markmiðum Íslands,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, á kynningarfundi í dag um nýjar losunartölur fyrir Ísland og stöðu loftslagsaðgerða.

Á fundinum voru kynntar bráðabirgðatölur Umhverfis- og orkustofnunar um losun gróðurhúsalofttegunda árið 2025. Samkvæmt þeim er heildarsamdráttur í losun 3,9% milli 2025 og 2024. Endanlegar tölur verða staðfestar í mars 2027.

Losun frá landi dregst saman um 2,2% og losun frá staðbundnum iðnaði dregst saman um 11%, aðallega vegna bilunar hjá Norðuráli og rekstrarstöðvunar PCC Bakka. Samfélagslosun minnkar um 2,7% milli ára, þ.e. losun frá vegasamgöngum, landbúnaði, sjávarútvegi, jarðvarmavirkjunum, vörunotkun og úrgangi. Í tilfelli vegasamgangna eykst þó losun lítillega, eða um 1,3%, sem skýrist m.a. af minni íblöndun hreinorkugjafa í jarðefnaeldsneyti.

Góður gangur á forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum

Fyrir ári, í september 2025, tilkynnti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra breytta nálgun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Ráðist var í allsherjartiltekt á aðgerðaráætlun í loftslagsmálum, sem þá taldi um 150 aðgerðir, og fjögur verkefni sett í forgang þvert á ráðuneyti. Jóhann Páll segir breytta nálgun þegar hafa skilað sér í hraðari innleiðingu og framkvæmd loftslagsaðgerða.

Forgangsverkefnin voru endurheimt votlendis og vistkerfa, hraðari orkuskipti í vegasamgöngum, grænn fjárfestingarstuðningur við bændur og stuðningur við þróun tæknilausna til þess að draga úr losun frá stóriðju. Áhrifa aðgerðanna mun gæta í losunartölum á næstu árum.

Góður gangur er á framkvæmd forgangsverkefnisins um endurheimt vistkerfa og votlendis sem stendur yfir. „Í haust verða endurheimtir samtals 225 hektarar votlendis á fimm ríkisjörðum. Það jafngildir 315 fótboltavöllum í fullri stærð. Við mokum ofan í 23 kílómetra af framræsluskurðum, sem er álíka vegalengd og frá Hveragerði til Þorlákshafnar,“ segir Jóhann Páll. Undirbúningsvinnan hefur staðið yfir undanfarið ár, auk þess að ráðherra undirritaði nýja reglugerð um umfangsmeira hvata- og stuðningskerfi við landgræðslu og skógrækt í fyrra. Á grundvelli hennar stendur yfir þróun fjárhagslegra hvata fyrir náttúrumiðaðar aðgerðir á einkalöndum, enda nauðsynlegt að bændur og aðrir landeigendur komi með í verkefnið og geti verndað og endurheimt vistkerfi samhliða sjálfbærri nýtingu lands.

Gripið hefur verið til markvissra aðgerða til þess að hraða orkuskiptum í vegasamgöngum. „Við fórum í stærstu styrkjaúthlutun sögunnar til orkuskiptaverkefna úr Loftslags- og orkusjóði strax síðasta haust, með 800 milljóna stuðningi við uppbyggingu hleðsluinnviða um allt land.  Auk þess felldum við niður vörugjöld af nýjum rafbílum um síðustu áramót samhliða öðrum breytingum á gjaldtöku ökutækja og fórum því næst í markvissar aðgerðir til að loka hleðslugatinu á þjóðvegum landsins,“ segir Jóhann Páll.

Þá studdi Loftslags- og orkusjóður við 42 verkefni í landbúnaði í mars á þessu ári sem snúa meðal annars að skilvirkari áburðardreifingu. Aukin heldur hlutu tvö verkefni styrk úr Loftslags- og orkusjóði sem snúa að tækniþróun sem stuðlar að samdrætti í losun frá stóriðju. „Við látum okkur ekki nægja að framleiðsla byggi á grænni orku heldur ýtum líka markvisst undir föngun og geymslu kolefnis, fjölnýtingu auðlindastrauma og minni losun frá iðnaðarferlum sem eru grundvallaratriði fyrir samkeppnishæfni iðnaðar á okkar dögum,“ segir Jóhann Páll

Tiltekt og umbótavinna í stjórnsýslu loftslagsmála

Samhliða nýrri nálgun með skýrari forgangsröðun verkefna hefur undanfarið ár staðið yfir umbótavinna í loftslagsstjórnsýslu. Tekið var til í aðgerðaáætlun stjórnvalda með skýrari markmiðum fyrir hverja og eina aðgerð, árangursmælikvörðum og innleiðingu fjölþáttamats sem gerir stjórnvöldum kleift að meta betur loftslagsávinning, kostnað, auðframkvæmanleika, umhverfisáhrif og samfélagsleg áhrif loftslagsaðgerða til að meta hvort aðgerðir hafi jákvæð eða neikvæð áhrif á jöfnuð, atvinnutækifæri og byggðaþróun.

Alls er 27 aðgerðum lokið og 29 aðgerðir, sem töldust til sífelluverkefna eða voru tvítaldar úr öðrum áætlunum stjórnvalda, hafa verið felldar brott. „Við erum búin að hreinsa til í aðgerðaáætlun loftslagsmála með áherslu á færri og stærri aðgerðir. Svo smíðuðum við ný heildarlög um loftslagsmál frá grunni. Þetta er löggjöf sem gerir vísindalegri nálgun og réttlátum orkuskiptum hátt undir höfði, löggjöf sem ég veit að mun skila sér í skýrari verkaskiptingu og skilvirkari framkvæmd loftslagsaðgerða. Ég geri ráð fyrir að frumvarpið verði lagt fyrir ríkisstjórn í næstu viku,“ sagði Jóhann Páll.

Skýrsla verkefnisstjórnar birtist nú í fyrsta skipti á gagnvirkan hátt á vef Stjórnarráðsins en báðar loftslagsáætlanir stjórnvalda má finna á co2.is, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og aðlögunaráætlun vegna áhrifa loftslagsbreytinga. Aðlögunaráætlun 2026-2030 kom út um síðustu áramót. Því er nú í fyrsta skipti fjallað um aðlögunaraðgerðir í skýrslunni en um þær á að fjalla eigi sjaldnar en annað hvert ár.

 

Kynning á nýjum losunartölum fyrir Ísland og stöðu loftslagsaðgerða.
Kynning á nýjum losunartölum fyrir Ísland og stöðu loftslagsaðgerða.

Nauðsynlegt að forgangsraða og hraða innleiðingu árangursríkra aðgerða

Samkvæmt framreikningum á losunartölum stefnir í 21% samdrátt í samfélagslosun árið 2030 miðað við árið 2005 með núverandi aðgerðum, en Ísland hefur sett sér markmið um 41% samdrátt. Í því ljósi duga núverandi loftslagsaðgerðir ekki til að Ísland nái markmiði sínu. Samkvæmt skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða er lagt til að gripið verði til umfangsmeiri aðgerða, tryggð verði fullnægjandi fjármögnun og aðgerðum forgangsraðað með hliðsjón af loftslagsávinningi.

Þau forgangsverkefni sem nefnd eru sérstaklega eru hraðari orkuskipti í samgöngum, fjárfestingar í grænum landbúnaði og endurheimt votlendis og vistkerfa. Í samræmi við það kynnti Jóhann Páll í dag forgangsverkefni stjórnvalda næsta árið.

Rafvæðing bílaleiguflotans stærsta áskorunin

Sagði Jóhann Páll stóra verkefnið vera að hraða orkuskiptum í vegasamgöngum og sérstaklega rafbílavæðingu bílaleiga. Í dag eru rafbílar um 80% af þeim nýju bílum sem einstaklingar og fyrirtæki önnur en bílaleigur kaupa en einungis 14% af bílakaupum bílaleiga. Samhliða breytingu á vörugjöldum sem ráðist var í sl. ár og gerir rafbíla hagstæðari í innkaupum ásamt hleðsluuppbyggingarátakinu, var ráðist í greiningu á þeim stuðningi sem hefur runnið í rafbílavæðingu bílaleiga undanfarin misseri.

Á síðasta kjörtímabili var samtals tæpum 10 milljörðum króna varið í skattaívilnanir og beinan og óbeinan ríkisstuðning við bílaleigufyrirtæki í nafni loftslagsmála. „Þetta eru mjög miklir peningar, en árangurinn er ekki meiri en þetta. Því verðum við að leita annarra leiða og nú er að störfum starfshópur með fulltrúum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, atvinnuvegaráðuneytis, fjármálaráðuneytis og forsætisráðuneytis sem ég bind vonir við að skili tillögum að skynsamlegri lausnum eins fljótt og mögulegt er,“ segir ráðherra

Innkaup bílaleiga hafa mikil áhrif á framboð notaðra bíla á Íslandi og aðgengi lægri tekjuhópa að ökutækjum, enda eru bílaleigubílar stór hluti eftirmarkaðarins: „Þannig að nú eru bílaleigufyrirtækin á Íslandi svolítið í þeirri stöðu að geta annaðhvort verið í fararbroddi orkuskipta á Íslandi eða verið sá geiri sem heldur aftur af orkuskiptum. Ég hef fulla trú á því að bílaleigurnar vilji vera í lykilhlutverki í orkuskiptasögu Íslands og við sem förum með stjórn landsins viljum hjálpa þeim við það, en við getum ekki haldið áfram að gefa peninga,“ segir Jóhann Páll.

„Nú er stóra verkefnið að varða leiðina áfram með enn markvissari hætti, innleiða næstu forgangsverkefni og vinna að því öllum árum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda hratt og örugglega.“

 

Skýrsla verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða