Mælti fyrir tveimur þingmálum
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026-2029 sem og frumvarpi sem miðar að því að styrkja rannsókn alvarlegra óvæntra atvika í velferðarþjónustu.
Virk þátttaka óháð þjóðerni og uppruna
Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda er lögð fram til fjögurra ára og hefur að markmiði að stuðla að samfélagi þar sem allir einstaklingar geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna.
Samkvæmt lögum um málefni innflytjenda skal ráðherra leggja fram á Alþingi slíka þingsályktunartillögu til fjögurra ára í senn að fenginni umsögn annarra ráðuneyta, stofnana, Vinnumálastofnunar og innflytjendaráðs.
Í áætluninni eru 24 aðgerðir sem skiptast í fimm megináherslur:
- Aðgerðir um íslenskunám og notkun tungumálsins í daglegu lífi
- Aðgerðir um mat á námi og þátttöku á vinnumarkaði
- Aðgerðir um upplýsingaþjónustu, samfélagsfræðslu og þátttöku
- Aðgerðir um sérstaklega viðkvæma hópa
- Aðgerðir um tölfræði og rannsóknir
Þingsályktunartillagan byggir á ítarlegu stöðumati og greiningu á brýnustu aðgerðum til að ná fram þeim markmiðum sem lög um málefni innflytjenda kveða á um. Staða í málefnum innflytjenda var metin og birt í grænbók í málefnum innflytjenda og flóttafólks í nóvember 2023. Henni var svo fylgt eftir með hvítbók í maí 2024, samhliða því sem Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) framkvæmdi úttekt um innflytjendur á Íslandi.
Þá var við mótun aðgerða í þingsályktunartillögunni byggt á samtali við innflytjendur sjálfa á fundum sem haldnir voru vítt og breitt um landið.
„Ríkisstjórnin hefur sett sér það markmið að efla íslenskukennslu þeirra sem hingað flytja. Við vitum að tungumálið er lykillinn að inngildingu og höfum þess vegna lagt áherslu á íslenskuna í þessari framkvæmdaáætlun. Ég vil hvetja samfélagið allt til að taka þátt í þessu sameiginlega verkefni, enda tekst það ekki nema allir leggi hönd á plóg,“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í framsöguræðu sinni í þinginu í dag.
Læra af alvarlegum atvikum og koma í veg fyrir að þau endurtaki sig
Ráðherra mælti einnig í dag fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV). Breytingarnar snúast um rannsókn alvarlegra óvæntra atvika og er markmið frumvarpsins að styrkja rannsóknir, tilkynningarskyldu og skráningu slíkra atvika í velferðarþjónustu.
Ráðherra undirstrikaði að GEV hefði víðtækar heimildir til að afla gagna við rannsókn alvarlegra óvæntra atvika en þyrfti jafnframt að reiða sig á framburð stjórnenda og starfsfólks sem veittu þjónustuna. Slíkur framburður væri lykilatriði. Samkvæmt gildandi lögum væri þó ekki tryggt að upplýsingar sem væri aflað við slíkar stjórnsýslurannsóknir yrðu ekki afhentar lögreglu. Dæmi væru um að framvinda rannsókna á vegum GEV hefði stöðvast vegna þessa.
Upplýsingar stjórnenda og starfsfólks væru oft lykilforsenda þess að greina mætti hvað hefði farið úrskeiðis og koma í veg fyrir að sambærileg atvik endurtækju sig. Við þetta yrði því ekki unað.
Í frumvarpinu er lagt til að gerðar verði sambærilegar breytingar á lögum um GEV og þegar hafa verið innleiddar í heilbrigðisþjónustu, með breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu. Í því felst meðal annars að skýrslur stofnunarinnar um rannsókn alvarlegra óvæntra atvika verði ekki notaðar sem sönnunargögn í sakamálum.
Jafnframt verði ekki heimilt að nota upplýsingar sem starfsfólk eða aðrir veita stofnuninni sem sönnunargögn gegn þeim, né að afhenda gögn sem geyma framburð þeirra. Ráðherra benti í þinginu á að með þessu væri skapað það traust sem þyrfti til að þau sem byggju yfir upplýsingum gætu tjáð sig af hreinskilni og að rannsóknir skiluðu raunverulegum árangri.
Hann lagði jafnframt áherslu á að með frumvarpinu væri dregin skýrari lína á milli stjórnsýslurannsókna annars vegar og sakamálarannsókna hins vegar og stuðlað að því að rannsóknir í þágu öryggis og umbóta nái fram að ganga.
Bæði þingmálin eru endurflutt frá síðasta löggjafarþingi.