Ráðherra heimsækir ferðaþjónustu á Austur- og Norðurlandi
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra heimsótti nýverið fyrirtæki í ferðaþjónustu og ferðmannastaði á Austur- og Norðurlandi. Jafnframt ávarpaði ráðherra afmælisþing Sambands sveitarfélaga á Austurlandi í Egilsbúð í Neskaupsstað og atvinnulífssýningu Skagafjarðar á Sauðárkróki.
„Þetta hefur verið afskaplega gagnlegt, að hitta það fólk sem er í eldlínu ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og heyra þeirra sjónarmið“ sagði atvinnuvegaráðherra. „Ég tel mikilvægt að við lítum ekki á atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni sem sérstakt verkefni án tengsla við annað í hagkerfinu, Ísland verður ekki efnahagslega sterkt nema atvinnulíf og samfélög séu sterk hringinn í kringum landið. Með stuðningi Flugþróunarsjóðs höfum við fengið millilandaflug til Akureyrar og ljóst er að þar á Austurland á mikið inni. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða nýtist síðan til að byggja upp áfangastaði ferðamanna á sömu svæðum og styður þannig enn frekar við dreifingu ferðamanna en við næstu úthlutun úr sjóðnum verður lögð sérstök áhersla á minna sótt svæði og jöfnun árstíðasveiflu. Í samtali mínu við ferðaþjónustuaðila á þessum svæðum heyrði ég hins vegar skýrt að það er ekki nóg að bæta aðgengi með flugi og byggja upp áfangastaði. Það verður einnig að tryggja vegasamgöngur að þeim og á það mun ég leggja áherslu núna.”
Á Austurlandi heimsótti ráðherra m.a. Ferðaþjónustuna á Mjóeyri, Tanna Travel, Vök Baths við Urriðavatn, Hak Bistró Café og Stuðlagil.
„Í mínum huga er Austurland skýr vitnisburður um það hversu miklu landsbyggðin skilar til þjóðarbúsins, hvort sem litið er til framlags sjávarútvegs, lagareldis, stóriðju, landbúnaðar eða ferðaþjónustu sagði ráðherra í ávarpi sínu á afmælisþingi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
Á Norðurlandi heimsótti ráðherra kaffihúsið Gísli, Eiríkur og Helgi á Dalvík, Arctic Sea Tours, Arctic Heliskiing og hið nýopnaða Skáld hótel á Akureyri.
„Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er eitt af okkar helstu verkfærum til að styðja við þau markmið sem við höfum sett okkur í ferðaþjónustunni“ sagði ráðherra. „Á næsta ári verða til úthlutunar um átta hundruð milljónir króna úr sjóðnum. Ég hef nú þegar tekið ákvörðun um að við næstu úthlutun skuli lögð sérstök áhersla á minna sótt svæði og jöfnun árstíðasveiflu. Sama áhersla endurspeglast í samningi sem ráðuneytið gerði við Íslandsstofu í sumar um neytendamarkaðssetningu, en framlag til hans nam 630 milljónum króna í ár. Stefnan er að gera neytendamarkaðssetningu viðvarandi og hætta tímabundnum átökum. Einnig vil ég nefna frumvarp til laga um náttúru- og innviðagjald á fjölsóttum ferðamannastöðum í eigu ríkisins. Markmið frumvarpsins er að þeir sem nýta náttúru og innviði landsins taki sanngjarnan þátt í þeim kostnaði sem af því hlýst. Tekjurnar munu skila sér til baka til greinarinnar, meðal annars í markaðssetningu og rannsóknir í ferðaþjónustu, sem og í það að byggja áfram upp og bæta innviði og náttúruvernd á þeim stöðum sem gjaldtakan nær til og um land allt. Þannig stöndum við vörð um gæði íslenskrar ferðaþjónustu til framtíðar og tryggjum að hún haldi samkeppnishæfni sinni.“