22. september 2026 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Svakalega lestrarkeppnin: „Hvað heldur þú að gerist næst?“

{image.Description}
Blær og Eva Rún hvetja alla til að setja sér markmið og auka lestur á heimilinu.

Svakalega lestrarkeppnin hóf göngu sína í síðustu viku en yfir 100 skólar eru skráðir til leiks. Keppnin er lestrarátak fyrir krakka í 1. - 7. bekk. Allir skólar geta tekið þátt og keppa um hver les mest á tímabilinu 15. sept til 6. okt.

Markmið keppninnar er að auka lestraránægju barna. Í keppninni skrá skólar hversu lengi nemendur lesa og senda inn tölur í lok keppninnar. Skólinn sem les í flestar mínútur sigrar keppnina og hreppir titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins ásamt því að fá glæsileg bókaverðlaun en úrslit verða tilkynnt 15. október.

Svakalegur árangur

Það eru barnabókahöfundarnir Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún Þorgeirsdóttir sem standa að Svakalegu lestrarkeppninni en þær hafa hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir verk sín. Í síðustu viku hlutu þær Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2026 fyrir handritið að glænýrri barnabók sem ber heitið Bestu vinir.

Keppnin er fjármögnuð af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og er þetta annað árið í röð sem blásið er til hennar. Óhætt er að segja að um „svakalegan“ árangur hafi verið að ræða á síðasta ári en þá lásu þátttakendur samtals í 9,7 milljónir mínútna á einum mánuði. Það verður því spennandi að sjá hve margar mínútur verða lesnar í ár.

Hvetjum til lestrar!

Blær og Eva Rún segja lestrarkeppnina hafa farið einstaklega vel af stað og hvetja alla til að setja sér markmið og auka lestur á heimilinu. Þótt skóli barnsins sé ekki skráður í keppnina geta allir lestrarhestar nálgast skráningarblað á sogusmidjan.is og haldið utan um lestrarmínútur sínar, fjölskyldunnar eða vinahópsins. Markmiðið er fyrst og fremst að kveikja áhugann – færnin fylgir síðan með æfingunni.

„Foreldrar ættu endilega að hvetja börnin sín áfram í lestrinum,“ segja þær stöllur og deila hér nokkrum góðum ráðum:

  • Spjöllum saman um bækur! „Hvað heldur þú að gerist næst?“ Það eykur lesskilning.
  • Má bjóða þér lestur? Barnið getur lesið bók fyrir foreldri eða yngra systkini.
  • Lestrarstund fyrir fjölskylduna eftir kvöldmat, þar sem allir setjast niður og lesa bók.
  • Fara saman á bókasafn! Það er mikilvægt að hafa gott úrval af bókum að velja úr. Það er líka gaman að heimsækja ný bókasöfn.
  • Hafið bækur sýnilegar og aðgengilegar, bæði heima fyrir og á ferð og flugi. Bók í töskunni eða hanskahólfi getur komið sér vel þegar það þarf að bíða.
  • Sýnið gott fordæmi. Börn sem sjá fullorðna lesa upplifa lestur frekar sem sjálfsagðan og ánægjulegan hluta daglegs lífs.
  • Tengið bækur við upplifun: Lesið um dýr fyrir ferð í Húsdýragarðinn, matargerð áður en þið bakið eða um staði sem fjölskyldan ætlar að heimsækja.
  • Skiptið um bók ef bókin vekur ekki áhuga barnsins. Það þarf ekki að klára allar bækur.
  • Hrósið barninu fyrir að lesa!

 

Góða skemmtun!