Heilbrigðisþjónusta skýrir stærstan hluta fjölgunar ríkisstarfa
Öldrun þjóðar kallar á aukna heilbrigðisþjónustu
93% af fjölgun stöðugilda frá árinu 2019-2025 má rekja til starfa í heilbrigðisþjónustu, öryggisþjónustu og kennslu. Heilbrigðisþjónustan vegur langþyngst og skýrir ein og sér um 72% af heildaraukningunni.
Fjölgun starfa í heilbrigðisþjónustu á sér lýðfræðilegar skýringar. Mannfjöldi á Íslandi jókst um 12,8% frá 1. janúar 2019 til 1. janúar 2026. Fjölgun í aldurshópnum 60 ára og eldri er um 22% á tímabilinu . Innan þess hóps sker aldursbilið 70 til 79 ára sig sérstaklega úr, en í þeim aldurshópi nemur fjölgunin um 35%, sem er hæsta hlutfallslega aukning allra aldurshópa. Til samanburðar hefur fólki undir 30 ára aldri fjölgað um 16% á sama tímabili.
Fjölgun starfa í heilbrigðisþjónustu má að hluta rekja til þess að verkefni tengd öldrunarþjónustu hafa á undanförnum árum færst frá sveitarfélögum til ríkisins. Þá hefur framboð á launuðum námsstöðum í heilbrigðisþjónustu aukist t.d. vegna sérnáms í heimilislækningum.
Öðrum störfum fjölgað um 2%
Að meðaltali hefur störfum hjá ríkinu fjölgað um 16% milli áranna 2019-2025. Eins og sjá má á mynd 2 er fjölgunin mest þegar kemur að grunnþjónustu. Öll önnur störf ná yfir um helming starfa ríkisins en fjölgun í þeim hefur verið 2% á tímabilinu sem um ræðir.
Fjölgun stöðugilda mest á tímum heimsfaraldurs
Fjölgun stöðugilda var mest á árunum 2021 og 2022, á tímum heimsfaraldurs, eins og sjá má á mynd 3. Þar er tímabilið jan-júlí borið saman frá 2019-2026.
Hagstofan hefur leiðrétt tölur um fjölgun ríkisstarfsmanna
Hagstofan áætlaði að ríkisstarfsmönnum hefði fjölgað um 4,7% milli maí 2025 og maí 2026. Hagstofan hefur uppfært gögnin og nemur fjölgunin eftir breytingu 2,6%. Tölur úr launakerfi ríkisins sýna um 2,1% breytingu þegar fjöldi stöðugilda eru borin saman fyrir sama tímabil. Mismunurinn á sér eðlilegar skýringar þar sem forsendur Hagstofunnar eru aðrar en í launakerfi ríkisins.
Þá hafa tölur Hagstofunnar um störf í opinberri þjónustu sem mynd 15 í Peningamálum í mars sl. byggir á verið leiðréttar.