Aldurstakmark barna á samfélagsmiðlum kynnt til umsagnar
Mennta- og barnamálaráðherra kynnir drög að frumvarpi um aldurstakmark barna á samfélagsmiðlum í Samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Með frumvarpinu er lagt til að aðgangur barna að samfélagsmiðlum sé takmarkaður við fimmtánda aldursár.
Markmið laganna er að vernda börn í stafrænu umhverfi með því að draga úr mögulegum skaðlegum áhrifum ótímabærrar notkunar samfélagsmiðla á líðan, þroska og öryggi þeirra. Lögunum er sömuleiðis ætlað að styðja við uppeldishlutverk og ábyrgð foreldra og forsjáraðila.
Frumvarpið leggur skyldur á foreldra og forsjáraðila um aðgang barna að samfélagsmiðlum en ekki á samfélagsmiðlana sjálfa. Á árinu sem barnið verður 15 ára fær það rétt á sjálfstæðum aðgangi að samfélagsmiðlum.
„Börn eiga að fá að vera börn. Leikur, vinátta og daglegt líf mega ekki vera undir hælnum á tæknirisum og skjám. Fyrir mánuði síðan undirritaði ég reglugerð um símafrí í skólum. Nú kynnum við til samráðs hækkun aldurstakmarks á samfélagsmiðlum í sívaxandi stafrænu umhverfi barna okkar, barna sem berskjölduð eru fyrir hættum sem þar kunna að leynast,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.
Efni frumvarpsins er í takt við sambærilega umræðu og stefnumótun víða um heim en verði frumvarpið samþykkt verður Ísland eitt af fyrstu löndum Evrópu til að lögfesta aldursmörk af þessu tagi.