Breytt skipulag lögreglu kynnt í lögregluráði
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti á fundi lögregluráðs í gær fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu. Með breytingunum stendur til að lögregluembættum verði fækkað úr níu í þrjú auk þess sem skerpt verður á hlutverki ríkislögreglustjóra. Ráðherra kynnti minnisblað um breytingarnar á fundi ríkisstjórnarinnar á þriðjudag.
„Með þessum breytingum er ætlunin fyrst og fremst að styrkja lögregluna um land allt og gera hana betur í stakk búna til að takast á við sífellt flóknari verkefni. Baráttan við skipulagða brotastarfsemi kallar á meiri sérhæfingu og sterkari liðsheildir. Með stærri og öflugri embættum skapast betri forsendur til að byggja upp slíka getu í öllum embættum og nýta mannafla með markvissari hætti. Um leið leggjum við ríka áherslu á að þjónusta og viðbragðsgeta lögreglu haldist sterk um allt land,“ segir dómsmálaráðherra.
Tvö sterk embætti á landsbyggðinni
Sameina á embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og lögreglustjórans á Suðurnesjum. Embætti lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vesturlandi og Vestfjörðum verða sameinuð í eitt og lögreglustjóraembættin á Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Með því verða til tvö öflug embætti á landsbyggðinni. Núverandi starfsstöðvar verða jafn margar og með aðstoðarlögreglustjórum í hverju umdæmi verður nálægð við ákvörðunartöku tryggð.
Starfandi lögreglustjórar hafa forgang umfram aðra til að sækjast eftir nýjum lögreglustjóraembættum. Fái þeir ekki skipun í embætti verður þeim boðin staða aðstoðarlögreglustjóra. Fari lögreglustjóri í hvorugt embætti, er honum tryggður lögbundinn biðlaunaréttur.
Eiga að styrkja traust til lögreglu
Verkaskipting ríkislögreglustjóra og lögreglustjóra verður jafnframt skýrð betur. Verkefni ríkislögreglustjóra verða í grunninn landsbundin samhæfing, sameiginleg þjónusta, fagleg þróun og verkefni sem þurfa að vera miðlæg. Þetta þýðir meðal annars að heimferða- og fylgdadeild og farþegaupplýsingadeild verða fluttar til nýs embættis á suðvesturhorninu.
Breytt skipulag er í takt við þróun á öðrum Norðurlöndum. Því er ætlað að styrkja traust almennings til lögreglu með skýrari ábyrgð, bæta eftirlit með störfum lögreglu og leggja ríkari áherslu á hæfni, fagmennsku og vandaða meðferð opinbers valds.