25. september 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Mælti fyrir tveimur þingsályktunartillögum: um offitu og um sjaldgæfa sjúkdóma

{image.Description}

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra mælti í gær fyrir þingsályktunartillögum sínum um aðgerðaáætlun til ársins 2030 vegna offitu og landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma til ársins 2031. Tillögunum hefur nú verið vísað til umfjöllunar velferðarnefndar Alþingis.

Aðgerðaáætlun vegna offitu

Offita er vaxandi lýðheilsuvandamál á heimsvísu og er áætlað að árið 2030 muni 3 milljarðar manna vera í ofþyngd. Hér á landi hefur tíðni offitu farið hratt vaxandi líkt og annars staðar. Árið 2025 voru 24% fullorðinna og 7,5% barna hér á landi með offituvanda en 60% fullorðinna og 26,4% barna voru í ofþyngd eða með offituvanda. Hlutfall fullorðinna með offituvanda hefur aukist um ríflega 4,5% frá árinu 2015. Meginmarkmið aðgerðaáætlunarinnar er að sporna gegn þessari þróun á markvissan hátt.

Í stuttu máli: Með forvörnum verði unnið að því að draga úr nýgengi offitu og koma í veg fyrir þróun alvarlegrar offitu, sérstaklega meðal ungra einstaklinga. Offita verði meðhöndluð líkt og aðrir langvinnir sjúkdómar með formlegri greiningu og aðgengi að fjölbreyttum meðferðarúrræðum og endurhæfingu þar sem byggt verði á gagnreyndum aðferðum. Unnið verði gegn neikvæðum viðhorfum og fordómum í samfélaginu.

Landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma

Sjaldgæfir sjúkdómar eru skilgreindir þeir sem hafa áhrif á færri en fimm af hverjum 10.000 einstaklingum. Um 7.000 sjaldgæfir sjúkdómar eru þekktir, meirihluti þeirra er af erfðafræðilegum orsökum. Ekki er vitað nákvæmlega hve margir sjaldgæfir sjúkdómar finnast hér á landi, né hve margir eru með slíka sjúkdóma. Sjaldgæfir sjúkdómar hafa víðtæk áhrif á einstaklinga og fjölskyldur þeirra vegna skorts á aðgengi að sérhæfðri meðferð og ófullnægjandi stuðningskerfa. Meginmarkmið landsáætlunarinnar er að bregðast við þessum áskorunum og bæta stöðu þeirra sem greinast með sjaldgæfa sjúkdóma.

Í stuttu máli: Fjallað er um aðgerðir til að tryggja einstaklingum með sjaldgæfa sjúkdóma hraða og áreiðanlega greiningu. Sérstök áhersla verði lögð á nýburaskimun og tímanlega greiningu erfðasjúkdóma. Einnig aðgerðir til að jafna aðgengi að meðferð, óháð efnahag og búsetu, hvort sem um ræðir einstaklingsmiðaða heilbrigðisþjónustu, sérhæfð lyf eða hjálpartæki. Þá eru tilgreindar aðgerðir til að tryggja þverfaglega samvinnu heilbrigðis-, félags- og menntakerfa vegna þjónustu og stuðnings við einstaklinga með sjaldgæfa sjúkdóma og fjölskyldur þeirra.