25. september 2026 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Samráð hafið um breytingar á RÚV

{image.Description}
Mynd: MNH

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur birt í samráðsgátt drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu (tekjuöflun Ríkisútvarpsins o.fl.)

Með frumvarpsdrögum er lagt til að umsvif Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði verði takmörkuð með eftirfarandi hætti:

  • Dregið verði úr fjárframlagi ríkisins til Ríkisútvarpsins sem nemi 10%* af tekjum Ríkisútvarpsins af viðskiptaboðum.  
    Hlutfallið reiknist af fjárhæð sem svarar til meðaltekna Ríkisútvarpsins af viðskiptaboðum síðustu fjögur heilu reikningsár á undan, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga samkvæmt vísitölu neysluverðs.
  • Lögfest verði hámark („þak“) á tekjur Ríkisútvarpsins af viðskiptaboðum.  
    Hámarkið verði útfært með þeim hætti að til frádráttar árlegri fjárveitingu til Ríkisútvarpsins komi fjárhæð sem nemur tekjum Ríkisútvarpsins af viðskiptaboðum umfram 2.800.000.000 kr. Hámarksfjárhæð tekur mið af meðaltali auglýsingatekna Ríkisútvarpsins 2022-2025 og verður endurreiknuð við undirbúning fjárlaga hverju sinni að teknu tilliti til verðlagsbreytinga samkvæmt vísitölu neysluverðs.

Metin voru áhrif skerðingar á fjárhag Ríkisútvarpsins miðað við að aflétta lánaskuldbindingum og skerða tekjur samstæðunnar um hlutfall auglýsingatekna, auk greiðslu umfram 2800 m.kr. hámark auglýsingatekna. Vinnan tók jafnframt mið af því að tilteknum lánaskuldbindingum Ríkisútvarpsins yrði aflétt.

Talið er að skerðing tekna um 10%, auk fjárhæðar umfram 2800 m.kr. hámark auglýsingatekna, samræmdist best þeim markmiðum frumvarpsins að rétta samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði, án þess að þjónusta Ríkisútvarpsins við almenning skerðist.

Kvaðir um lágmarksfjölda stöðva felldar brott

Einnig er í frumvarpsdrögum lagt til að felldar verði brott úr 3. gr. laganna, kvaðir um lágmarksfjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva sem Ríkisútvarpinu er skylt að dreifa um allt land. Með breytingunni verður stjórn RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum. Ekki er talið nauðsynlegt eða æskilegt að fjöldi rása Ríkisútvarpsins sé sérstaklega tilgreindur í lögum.

Auglýsingafé RÚV veitt til annarra fjölmiðla

Frumvarpsdrögin eru liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda um málefni fjölmiðla sem kynnt var 19. desember 2025 og tengjast áformum ríkisstjórnarinnar um að framlög til einkarekinna fjölmiðla verði hækkuð.

Sú leið sem lögð er til í frumvarpinu, samhliða hækkun fjárframlaga til einkarekinna fjölmiðla, er talin best til þess fallin að stuðla að eftirtöldu:

  1. Að breytingar á tekjuöflun RÚV leiði ekki til þess að meira auglýsingafé renni úr landi;
  2. Að slíkar breytingar skili sér til annarra íslenskra fjölmiðla og;
  3. Að RÚV verði áfram aðgengilegur auglýsingavettvangur, sem auglýsendur og framleiðendur telja forsendu þess að framleitt verði íslenskt efni og kvikmyndaðar auglýsingar.

RÚV geti áfram sinnt fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu

Efni frumvarpsdraganna er í samræmi við viðauka II við þjónustusamning ráðherra og Ríkisútvarpsins 2024-2027, um að dregið verði úr umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði á samningstímabilinu. Til að tryggja að Ríkisútvarpið geti áfram uppfyllt ákvæði þjónustusamnings um fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu og mæta að hluta til þeirri tekjuskerðingu á auglýsingatekjum sem áformuð er verða eldri lífeyrisskuldbindingar RÚV færðar frá félaginu líkt og gert hefur verið hjá opinberum aðilum og fyrirtækjum sem sinna opinberum rekstri.

Frestur til að senda umsagnir um frumvarpið er til og með 11. október nk.

Málið í samráðsgátt stjórnvalda