25. september 2026 /
Dómsmálaráðuneytið
Sex umsóknir um tvö dómaraembætti
Þann 4. september 2026 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði laus til umsóknar tvö embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Annars vegar er þetta skipun í embætti dómara og hins vegar setning dómara til og með 31. ágúst 2029. Umsóknarfrestur rann út 21. september og eru umsækjendur:
- 1. Guðmundur Thorlacius lögfræðingur,
- 2. Sólveig Ingadóttir aðstoðarsaksóknari og staðgengill lögreglustjóra á Norðurlandi vestra,
- 3. Sverrir Sigurjónsson lögmaður,
- 4. Tómas Hrafn Sveinsson formaður umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur,
- 5. Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður,
- 6. Þóra Hallgrímsdóttir settur dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara á næstu dögum.