Ekki hægt að halda alþjóðalög í heiðri aðeins þegar hentar
Það getur ekki gengið að einstök aðildarríki Sameinuðu þjóðanna haldi alþjóðalög í heiðri aðeins þegar hentar þeim. Úrskurðum alþjóðadómstóla ber að hlíta og ekki aðeins þegar stjórnvöldum í einstökum ríkjum líkar niðurstaðan. Fullveldi þjóða ber að virða skilyrðislaust. Í hvert skipti sem gróf brot eru framin á þeim leikreglum sem alþjóðasamfélagið hefur sett sér án nokkurra afleiðinga þá aukast líkurnar á því brotin séu endurtekin. Þetta er meðal þess sem fram kom í ávarpi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York nú síðdegis.
Þorgerður Katrín lagði áherslu á að fyrir smáþjóð eins og Ísland skipti öllu að virðing væri borin fyrir alþjóðalögum. Ekki þýði að kenna stofnununum um að það hrikti í stoðum alþjóðakerfisins. Á bak við sama kerfi séu jú einstaklingar, leiðtogar, þjóðir; sem verði að standa vörð um þau gildi sem liggja til grundvallar. Hún sagði hollustu við Sameinuðu þjóðirnar og það alþjóðakerfi sem komið var á fót eftir seinni heimsstyrjöld hins vegar ekki þýða að hægt sé að halda því fram að allt virki fullkomlega. Skriffinnskan sé stundum of mikil, ákvarðanataka of hæg og öryggisráð Sameinuðu þjóðanna – sem ber ábyrgð á að standa vörð um frið og öryggi í heimi hér – sé alltof oft lamað, grípi ekki til aðgerða einmitt þegar aðgerða er þörf.
Grimmilegt stríð Rússlands gegn Úkraínu sé skýrt dæmi um að stundum hunsi tilteknir ráðamenn þær reglur sem þeir hafa þó samþykkt að fylgja. Rússar hafi ráðist inn í fullvalda nágrannaríki, í þeim tilgangi að víkka út sitt landsvæði með valdi og meina annarri þjóð um frelsið til að ráða sinni eigin framtíð. Úkraínumenn hafi goldið þessa framgöngu dýru verði. Afstaða Íslands í þessum efnum sé skýr. Úkraína hafi rétt á að verja hendur sínar, rétt til fullveldis og þess að borin sé virðing fyrir landamærum hennar, rétt til sanngjarns og varanlegs friðar sem grundvallist á alþjóðalögum.
Þessi afstaða Íslands byggist á þeirri grundvallarsýn að ein þjóð geti ekki tekið sér það vald að ákveða framtíð annarrar. Hið sama eigi við í Mið-Austurlöndum. Vopnahlé á Gaza sé stöðugt rofið og þjáningar óbreyttra borgara haldi áfram hvað sem líður friðaráætlunum og ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. „Við getum ekki unað því að Gaza sé síknt og heilagt lagt í rúst og í kjölfarið endurreist á meðan ekki er tekist á við undirliggjandi ástæður átakanna,“ sagði Þorgerður Katrín. Ólögleg landtaka haldi áfram á Vesturbakkanum. „Markmið okkar er áfram hið sama: að til verði sjálfbært palestínskt ríki við hlið Ísraels, þar sem báðar þjóðir verði færar um að lifa við öryggi, með sæmd og í friði,“ sagði hún og bætti við: „Við heyrðum talað um „siðferðislega hugleysingja“ úr þessum fundarstóli. Fyrir mér þá eru siðferðislegir hugleysingjar þeir leiðtogar heims sem neita að setjast niður og semja um sanngjarnan og varanlegan frið. Þeir sem neita fólki um aðgengi að mannúðaraðstoð sem svo sárlega þarfnast þess. Og þeir leiðtogar eru siðferðislegir hugleysingjar sem fara ítrekað gegn og gera lítið úr alþjóðalögum.“
Átök annars staðar megi ekki gleymast heldur. Í Súdan hafi verið framin ódæðisverk, fólki stökkt á flótta og alþjóðleg mannúðarlög verið brotin. Ekki sé skortur á vitneskju um stöðuna. Það sem vanti séu aðgerðir til að bregðast við.
Mannréttindi eins koma ekki á kostnað réttinda annars
Utanríkisráðherra gerði réttinn til frjálsra siglinga einnig að umtalsefni, nokkuð sem skipti Íslendinga miklu máli, enda grundvallist tilvera okkar á þeim. Ekki sé valkvætt að framfylgja hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ekki heldur í Hormús-sundi og Bab el-Mandeb þar sem núverandi staða valdi ekki aðeins ríkjunum á svæðinu skaða heldur grafi undan orku- og fæðuöryggi í heiminum öllum.
Þorgerður Katrín fjallaði um mannréttindamál í ávarpi sínu og lýsti áhyggjum sínum af bakslagi hvað varðar réttindi hinsegin fólks, líka í Evrópu. Sótt sé að réttindum kvenna, annarra minnihlutahópa, farandfólks. Fólki sem líti óvenjulega út, elski öðruvísi en þorri fólks. „Okkur er sagt að jafnréttisþróunin hafi gengið of langt. Að fjölmenning sé orðin of mikil. Að það stefni í voða frelsi einhverra þegar annað fólk krefst einfaldlega þess að njóta sinna réttinda. Þessu hafna ég algerlega. Mannréttindi eins koma ekki á kostnað annars. Kona sem nýtur jafnréttis er ekki að ganga með þeim hætti á rétt karls. Að gera hinsegin manneskju kleift að lifa frjálsri skerðir ekki frelsi annarrar manneskju. Þvert á móti.“
Ráðherra sagði bakslag í réttindamálum hvergi hafa orðið jafn mikið og í Afganistan, þar sem konur og stúlkur hafi verið gerðar ósýnilegar. Stúlkum sé neitað um réttinn til menntunar, konum meinað um sjálfsögð réttindi. „Fyrir mér er þetta ekkert annað en kynferðisleg aðskilnaðarstefna,“ sagði Þorgerður Katrín. Ísland eigi um þessar mundir aðild að mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og þar verði áfram lögð áhersla á öll þessi brýnu réttindamál; jafnrétti kynjanna, réttindi hinsegin fólks, réttindi barna og tengsl mannréttinda og umhverfismála. „Mannréttindi eru ekki fyrir suma: þau eru fyrir okkur öll.“
Loftslagsmál komu einnig við sögu í ávarpi utanríkisráðherra. Sagði hún að vísindi og staðreyndir yrðu að vera leiðarvísir mannkyns. Leiðtogum sem afneituðu eða afbökuðu sannleikanum bæri að útskýra mál sitt fyrir íbúum eyríkja sem fylgdust með yfirborði sjávar rísa og Sahel-svæðisins í Afríku þar sem gæti þurrka og jarðvegsrofs. Á Íslandi sæjum við breytingarnar sem væru að eiga sér stað á norðurslóðum. Hækkandi hitastig og hverfandi ísjöklar væru að valda breytingum á vistkerfum og lífi þeirra sem byggja svæðið. „Loftlagsbreytingar eru ekki hugmyndafræði. Milljónir manna búa nú þegar við afleiðingar þeirra. Við þurfum að takast á við þær, ekki horfa framhjá þeim,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.