28. september 2026 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2027

{image.Description}
DL

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2027.

Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Samkvæmt ákvörðun atvinnuvegaráðherra verður sérstök áhersla lögð á minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils við úrvinnslu umsókna. Gæðamat umsókna mun taka mið af þessari áherslu.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins. Gæðamatsblað ásamt frekari upplýsingum um sjóðinn, skilyrði lánveitenda og umsóknarferlið má finna á vefsíðu Ferðamálastofu.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Ísland.is en hlekkur á umsókn er á vefsíðu Ferðamálastofu.

Umsóknartímabil er frá og með 28. september til kl. 13 þann 27. október. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.

Markmið Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða og ferðamannaleiða um land allt og styðja með því við þróun ferðaþjónustu sem mikilvægrar og sjálfbærrar stoðar í íslensku atvinnulífi. Jafnframt er markmiðið að stuðla að dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun.