28. september 2026 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Styrkveitingar til verkefna og viðburða á málefnasviðum atvinnuvegaráðherra haustið 2026

{image.Description}
DL

Atvinnuvegaráðuneytið veitir styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum atvinnuvegaráðherra. Heildarfjárhæð styrkja er skv. ákvörðun ráðherra hverju sinni og getur hver einstakur styrkur numið að hámarki 1.500.000 kr. á verkefni. Styrkir eru veittir til eins árs í senn. Styrkhæf verkefni eru þau sem samræmast gildandi stefnu, markmiði og áherslum atvinnuvegaráðherra.

Til að umsókn verði tekin gild skulu  fylgja eftirtalin gögn fylgja:

  • Upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur
  • Upplýsingar um aðra þátttakendur og samstarfsaðila ef einhverjir eru
  • Nafn þess sem annast samskipti við ráðuneytið
  • Nákvæm lýsing á verkefni, markmiðum þess og þýðingu fyrir umsækjendur auk rökstuðnings hvernig verkefnið samræmist stefnu, markmiði og áherslum atvinnuvegaráðherra.
  • Lýsing á því hvernig árangur verkefnis verði metinn
  • Tíma- og verkáætlun
  • Fjárhagsáætlun þar sem koma m.a. fram upplýsingar um áætlaðan kostnað, tekjur, hlutdeild annarra í kostnaði við verkefnið og styrkfé sem verkefnið hefur hlotið eða hefur sótt um.
  • Staðfest gögn frá samstarfsaðilum sem og önnur gögn til stuðnings umsókn.

Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga, einstaklinga, rekstrarstyrkir, ferðastyrkir, styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS, eða meistaraprófa. Þá eru ekki veittir styrkir til bæjarhátíða.

Við úthlutun er m.a. horft til þess hvort verkefnin þyki hafa gildi fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks, hvort verkefnið búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hvort markmið og mælikvarðar séu skýrir.

Ráðuneytið mun ekki taka til umfjöllunar umsóknir sem berast utan auglýsts tímafrests eða sem berast eftir öðrum leiðum en í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Eftir innskráningu með rafrænum skilríkjum þarf að að fara í Eyðublöð og velja viðeigandi eyðublað undir atvinnuvegaráðuneytinu.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 20. október 2026.

Óska má eftir nánari upplýsingum um styrkina gegnum netfangið [email protected]