Uppfærð handbók um sameiningar ríkisstofnana
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út uppfærða handbók um sameiningar stofnana, sem inniheldur leiðbeiningar um undirbúning, framkvæmd og eftirfylgni við sameiningar ríkisstofnana. Leiðbeiningunum er ætlað að styðja ráðuneyti, stjórnendur og verkefnisstjóra við að undirbúa og leiða sameiningar með markvissum hætti.
Sameining ríkisstofnana er umfangsmikið breytingaverkefni sem krefst skýrra markmiða, vandaðs undirbúnings og virkrar þátttöku stjórnenda og starfsfólks. Leiðbeiningarnar styðja við stefnu stjórnvalda um einfaldara og skilvirkara stofnanakerfi þar sem stofnanir hafa aukna getu til að sinna kjarnaverkefnum sínum og veita góða opinbera þjónustu.
Í leiðbeiningunum er sameiningarferlinu skipt í fimm skref:
- Frumathugun á markmiðum og fýsileika sameiningar.
- Samráð við starfsfólk og aðra hagsmunaaðila.
- Gerð samrunaáætlunar með verk-, tíma- og kostnaðaráætlun.
- Framkvæmd með virkri þátttöku starfsfólks.
- Eftirfylgni og úttektir á árangri sameiningarinnar.
Sérstök áhersla er lögð á mannlega þáttinn og mikilvægi skýrra og reglulegra samskipta. Sameiningar geta valdið óvissu meðal starfsfólks og því skiptir miklu að byggja upp traust, tryggja þátttöku og vinna markvisst að mótun sameiginlegrar vinnustaðarmenningar.
Leiðbeiningarnar innihalda einnig hagnýta gátlista um meðal annars hagsmunaaðila, starfsmannamál, verkefnastjórnun, fjármál, stjórnskipulag, vinnustaðamenningu og húsnæðismál. Þá er fjallað um hvernig nýta megi gervigreind með ábyrgum hætti við greiningar, áætlanagerð, samskipti og eftirfylgni í sameiningarferlinu.
Útgáfan byggir á leiðbeiningum fjármálaráðuneytisins frá árinu 2008 en efnið hefur verið endurskoðað og uppfært með hliðsjón af reynslu síðustu ára. Framsetningin er styttri og aðgengilegri og miðast við þarfir þeirra sem stýra sameiningarverkefnum í framkvæmd.
Stefnt er að því að leiðbeiningarnar verði uppfærðar reglulega á vef Stjórnarráðsins í ljósi reynslu og ábendinga notenda.