Veigamiklar breytingar hafa verið gerðar á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur gert veigamiklar breytingar á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu (nr. 324/2023). Markmiðið með breytingum er að tryggja skilvirka og örugga þjónustu fyrir neytendur og efla eftirlit með leigubifreiðaþjónustu. Breytingarnar taka allar gildi strax ef undan er skilið ákvæði um sérstök skráningarmerki.
Helstu breytingar sem hafa nú þegar tekið gildi í reglugerð um leigubifreiðaakstur eru:
- Samgöngustofu ber að framkvæma árlegt eftirlit með leyfishöfum, koma upp sérstöku áhættumatskerfi og sinna frekara eftirliti á grundvelli þess.
- Samgöngustofu er falið að gera árlega skýrslu um framkvæmd eftirlits.
- Próftaka fer fram án utanaðkomandi aðstoðar.
- Samgöngustofu ber að hafa árlegt eftirlit með viðurkenndum námskeiðshöldurum.
- Leigubifreiðastöðvar eiga að setja og birta eigin hátternisreglur. Þeim ber einnig að halda rafræna atvikaskrá um frávik í starfsemi, brot á lögum og kvartanir neytenda.
- Ítarlegri kröfur um framsetningu á verðskrá og sýnileika á leyfisskírteini í leigubílum.
- Leigubifreiðastöðvar skulu halda rafræna skrá yfir allar seldar ferðir og upplýsingar úr henni skulu vera eftirlitsaðilum aðgengilegar í rauntíma í gegnum örugga vefgátt.
- Leyfishafa ber að tilkynna Samgöngustofu um úrskurði eftirlitsaðila, t.d. Neytendastofu, vegna lögbrota. Slík brot geta jafnframt talist brot á góðum viðskiptaháttum og leitt til leyfissviptingar
- Leigubifreiðar verði auðkenndar með sérstöku skráningarmerki (lituðum númeraplötum). Sú breyting tekur gildi 1. apríl 2027 og sérstök reglugerð verður sett um nýju skráningarmerkin.
Eftirlit og öryggi aukið
Breytingarnar á reglugerðinni eru liður í heildarendurskoðun á lagaumhverfi fyrir leigubifreiðaþjónustu. Frumvarp innviðaráðherra um breytingar á leigubifreiðalögum voru samþykktar á Alþingi í mars sl. sem tóku gildi 1. júní sl.
„Í sumar stigum við stór skref með nýju lagafrumvarpi þar sem undanþága frá stöðvaskyldu var afnumin. Enginn leigubílstjóri ekur lengur án aðhalds og eftirlits frá stöð. Stöðvunum hefur verið gert skylt að halda nákvæma staðsetningarskrá allra ferða í stafrænum kerfum sem sæta árlegri úttekt. Jafnframt var mat á góðu orðspori gert auðveldara og í samræmi við skilning almennings á því mikilvæga hugtaki. Þannig tryggjum við að aðilar sem hafa ítrekað eða með alvarlegum hætti brotið gegn lögum og reglum sem um starfsstéttina varða geti ekki sinnt leigubifreiðaakstri, um leið og við stórbætum rétt farþega til að kvarta og auðveldum rannsóknir yfirvalda,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
Krafan um rafræna skráningu og úttektir á stafrænum kerfum kemur til framkvæmda um næstu áramót. Þeir sem ekki uppfylla kröfurnar munu sæta viðurlögum frá Samgöngustofu og eiga leyfissviptingu yfir höfði sér.
„Með reglugerðarbreytingum göngum við enn lengra. Hver stöð setur bílstjórum sínum nú skýrar hátternisreglur og tekur á brotum. Öllum atvikum er haldið til haga í atvikaskrá á sama tíma og eftirlitsaðilar fá rauntímaaðgang að ferðaskrám. Jafnframt verða heimildir eftirlitsaðila til sviptinga auknar svo þeir sem brjóta ítrekað eða alvarlega af sér missi leyfið. Upplýsingagjöf til farþega verður sömuleiðis bætt þar sem kröfur um sýnileika merkinga eru hertar og verðskrá þarf að vera stærri og skýrari. Þar að auki verður leyfisskírteini leigubifreiðastjóra alltaf að vera vel sýnilegt fyrir miðju á mælaborði. Þá herðum við kröfur um próftöku, enginn fær nýtt leyfi nema að standast prófið án utanaðkomandi aðstoðar. Frá 1. apríl 2027 verða leigubílar svo auðkenndir með sérstökum númeraplötum. Enginn á að þurfa að efast um að hann sé að stíga upp í leigubíl sem sætir ströngu eftirliti bæði stöðvar og Samgöngustofu,“ segir ráðherra.
Innviðaráðherra segir markmiðið með þessu öllu vera að stórauka eftirlit og öryggi í greininni.
„Við erum þó hvergi nærri hætt og næsti áfangi við undirbúning frekari laga- og reglugerðarbreytinga er nú þegar á teikniborðinu,” segir ráðherra.
- Skoða breytingar á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu (nr. 324/2023)